Hestamannafélagið Kópur

Hestamannafélagið Kópur var stofnað 30.júní árið 1963. Félagið heitir eftir hesti þeim, er Sveinn Pálsson læknir reið yfir Jökulsá, ófæra af jakaburði, og Grímur Thomsen yrkir um í ljóði sínu ” Sveinn Pálsson og Kópur”. Fyrsti formaður var Sigurgeir Jóhannsson á Bakkakoti. Stofnfélagar voru 59. Félagssvæðið er Skaftárhreppur þ.e. frá Mýrdalssandi í vestri að Lómagnúpi í austri. Helsta starfsemi félagsins er mótahald, skemmtanir, fræðsla í formi námskeiðahalds, æskulýðsstarf og hestaferðir. Fyrsta mótssvæði félagsins var á Bakkakotsbugum í Meðallandi en er nú á Sólvöllum í Landbroti. Félagsbúningurinn er rauður jakki, hvít skyrta, svart bindi og hvítar buxur.