Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu

Ársþing USVS

Ársþing USVS var haldið á Hótel Dyrhólaey miðvikudaginn 9. júní. Þingið tókst vel og mættu 26 þingfultrúar af 30  auk gesta. Litlar breytingar urðu á stjórnsambandsins. Formaður USVS er áfram Fanney Ásgeirsdóttir aðrir í stjórn eru: Sif Hauksdóttir, Sigmar Helgason, Árni Jóhannsson og Ragnar S. Þorsteinsson. Stjórn mun svo skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi. Varastjórn skipa þau Fanney Ólöf Lárusdóttir, Sabina Victoria Reinholdsdóttir og Kristín Ásgeirsdóttir. Sæunn Káradóttir sem hefur verið ritari í stjórn USVS ákvað að gefa ekki kost á sér áfram í stjórn. USVS þakkar henni fyrir vel unnin störf. Á þinginu fengu starfsmerki UMFÍ  Þorsteinn M. Kristinsson, sem var formaður USVS 2015-2020, Lára Oddsteinsdóttir, sem hefur verið í stjórn USVS og hestamannafélaginu Sindra og Sveinn Þorsteinsson, sem hefur lengi starfað fyrir USVS og Ungmennafélögin í Mýrdalshrepp....

Íþróttamaður USVS 2020

Á 51. Ársþingi USVS var Svanhildur Guðbrandsdóttir valin Íþróttamaður USVS 2020. Aðalkeppnishross Svanhildar hefur verið Aðgát frá Víðivöllum fremri og Pittur frá Víðivöllum fremri. Svanhildur hefur staðið sig vel á þeim mótum sem hún hefur keppti á árið 2020 og í lok árs 2020 var Svanhildur valin í ungmennalandslið Íslands í hestaíþróttum. Svanhildur er flott fyrirmynd. Hún er reglusöm, duglegur námsmaður og virkilega samviskusöm í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur. Sanne V. Hezel og Sabina Victoria voru tilnefndar til að verða íþróttamaður USVS. Lárus Guðbrandsson tók á móti verðlaunum fyrir hönd Svanhildar....

Efnilegasti íþróttamaður USVS 2020

Á ársþingi USVS voru veitt verðlaun fyrir efnilegasta íþróttamanns USVS. Tveir drengir frá Ungmennafélaginu Kötlu voru tilnefndar, Egill Atlason Waagfjörð og Eyjólfur Lárus Guðbjörnsson . Egill fékk titilinn efnilegasti íþróttamaður USVS árið 2020. Egill mætti á nánast allar æfingar Umf. Kötlu árið 2020 hann er alltaf mjög áhugasamur og virkur á æfingum og hefur mikinn metnað og leggur sig 100% fram á æfingum. Hann keppti á Meistaramóti Íslands utanhúss á Sauðarkróki í sumar með ágætis árangri. Þar bætti hann árangur sinn í flestum greinum. Það verður spennandi að fylgjast með honum á árinu 2021 þar sem mótin verða vonandi fleiri. Egill stundaði einnig knattspyrnu af miklum krafti og eru mætingar og framkoma til mikillar fyrirmyndar. Egill er flott fyrirmynd fyrir hópinn og mjög virkur og áhugasamur, þessi mikli áhugi hefur skilað sér í miklum...