Frábær árangur á Vormóti Fjölnis
Tveir keppendur frá USVS, ásamt þjálfara voru mættir á Laugardalsvöll fyrr í dag, til að keppa á Vormóti Fjölnis. Þetta voru Elín Gróa Kjartansdóttir og Vignir Jóhannson, en þau voru mætt ásamt Ástþóri Jóni Tryggvasyni þjálfara sem þau hafa æft hjá síðan um miðjan maí.