Ráðstefna fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára á vegum UMFÍ
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði February 17, 2016 Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur nú í sjöunda sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna – geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og mun hún fara fram 16. – 18. mars á Hótel Selfossi. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni en jafnframt koma Héraðssambandið Skarphéðinn og Sveitarfélagið Árborg að undirbúningi.