Reglugerð um val á íþróttafólki og sjálfboðaliða ársins.
1.grein
Íþróttamaður ársins, efnilegasti íþróttamaður, lið ársins og sjálfboðaliði ársins skulu valin árlega af stjórn USVS.
2. grein
Þau sem eru félagar í aðildafélögum USVS koma ein til greina.
3.grein
Taka skal tillit til allra íþróttagreina jafnt.
4.grein
Hvert aðildarfélag tilnefni einn einstakling til kjörsins íþróttamaður ársins, að minnsta kosti einn efnilegasta íþróttamann ársins, að minnsta kosti eitt lið ársins og að minnsta kosti einn sjálfboðaliða ársins. Hverri tilnefningu skal fylgja skrifleg greinargerð.
Við val á efnilegasta íþróttamanni og íþróttamanni ársins skal tekið tillit til:
a) Afreka (hér er átt við afrek unnin á mótum á vegum USVS eða í hverri annarri opinberri íþróttakeppni)
b) Framfara
c) Ástundunar, framkomu og reglusemi
5.grein
Verðlaunahafar fá til varðveislu farandbikara og einnig eignabikara.
Samþykkt á 25. ársþingi USVS á Kirkjubæjarklaustri 27. mars 1994. Breytt á ársþingum 2002, 2004, 2012 og síðast árið 2023.
