Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir náði þeim frábæra árangri að verða heimsmeistari í tölti á hesti sínum, Þokka frá Efstu-Grund, á heimsmeistaramótinu í Herning í Danmörku. Sigurinn er enn stærri fyrir það að töltið er jafnan aðal keppnisgreinin á heimsmeistarmótinu. Þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur innan vébanda USVS verður heimsmeistari. USVS óskar Kristínu Lárusdóttur til hamingju með þennan frábæra árangur. Sigrarnir gerast vart stærri.
Read More
Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri

Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri

Nú líður senn að Unglingalandsmótinu á Akureyri um verslunarmannahelgina. USVS vill hvetja öll ungmenni og foreldra þeirra, á sambandssvæðinu, að fjölmenna norður. Við skemmtum okkur öll vel á mótinu í fyrra og fjörið verður ekki síðra í ár. Boðið upp á fjölda greina við allra hæfi. Við ætlum svo sannarlega að fjölmenna einnig í ár. Upplýsingar og skráning á vefsíðu mótsins á www.ulm.is. Skráningarfrestur er til 26. júlí.
Read More
Innanhúsmót USVS 2015

Innanhúsmót USVS 2015

Innanhúsmót USVS verður haldið á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 1. mars n.k. Mótið hefst kl 11:00. Athugið breytta dagsetningu! Tímaseðil mótsins má sjá á hér Að auki er keppt í eftirfarandi sundgreinum: 9-10 ára - 25 m bringa, 25 skrið 11-12 ára -  50m skrið, 50m bringa, 50m bak 13-15 ára - 50m skrið, 50m bringa, 50m bak Skráning hjá usvs@usvs.is Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta koma og taka þátt!
Read More
Guðni Páll kveður USVS

Guðni Páll kveður USVS

Guðni Páll Pálsson kom fjórði í mark í Gamlárshlaupi ÍR á tímanum 34:32. Guðni hefur undanfarin ár verið einn af bestu, ef ekki besti íþróttamaður USVS. Á árinu 2014 setti Guðni 4 héraðsmet í 800m, 5km, 10km og hálfu maraþoni. Meðal afreka hans á árinu má nefna 800m hlaup á vormóti HSK þar sem hann hafnaði í 2. sæti á tímanum 1:59,61 og bætti þar með héraðsmet Guðna Einarssonar frá árinu 1987 (eða jafn gamalt honum sjálfum) um tæpar 7 sekúndur. Í Reykjavíkurmaraþoni kom hann í mark á tímanum 1:17:07 og hafnaði í 3. sæti Íslenskra karla. Hann bætti þar með,…
Read More

Silfurleikar ÍR

Þann 15. nóvember næstkomandi verða haldnir Silfurleikar ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjvík. Silfurleikarnir er frjálsíþróttamót fyrir krakka á aldrinum 11-17 ára og er einnig fjölþraut fyrir 10 ára og yngri. Keppt er í eftirtöldum greinum; 60m, 60m grind, 200m, 600m, 800m, þrístökk, langstökk og hástökk. Keppni hefst kl: 09:00 og er áætlað að hún klárist 17:15. Við hvetjum alla til að taka þátt og hægt er að senda póst á usvs@usvs.is eða hringja í síma 8410199. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ÍRhttp://www.ir.is/Deildir/Frjalsar/FrjalsithrottavidburdirIR/SilfurleikarIR/ . Skráningarfrestur er til 10. nóv.
Read More
44. ársþing USVS

44. ársþing USVS

44. ársþing USVS fór fram á Hótel Laka á Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 29. mars. Góð mæting var á þingið sem var starfssamt og gott. Þá var tilkynnt um val Íþróttamanns ársins og efnilegasta íþróttamannsins. Íþróttamaður ársins er að þessu sinni Hlynur Guðmyndsson, hestamannafélaginu Sindra. Efnilegasti íþróttamaðurinn er Guðný Árnadóttir, ungmennafélaginu Kötlu. Ný stjórn var kosin á þinginu og í henni sitja: Þorsteinn M. Kristinsson formaður Erla Þórey Ólafsdóttir Pálmi Kristjánsson Ástþór Jón Tryggvason Bergur Sigfússon Varastjórn: Ármann Gíslason Kristín Ásgeirsdóttir Eyrún Elvarsdóttir
Read More