Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur.
Viðmælandi föstudagsspjallsins að þessu sinni er reiðkennarinn Svanhildur Guðbrandsdóttir frá Syðri-Fljótum í Meðallandi. Hún mun um helgina hafa umsjón með reiðnámskeiði í samstarfi við Hestamannafélagið Kóp.
USVS setti sig í samband við Svanhildi og spurði hana nokkra spurninga um lífið og hestamennskuna.
Hvenær og hvers vegna byrjaðir þú í hestamennsku?
Ég veit ekki hvenær ég byrjaði en hef verið í kringum hesta frá því að ég man eftir mér. Það hefur einhvern veginn alltaf verið sjálfsagt að hestar væru partur af deginum. Geri oft grín af því að það hafi ekkert annað verið í boði en að byrja í hestum. Foreldrar mínir unnu langa daga í hesthúsinu og ef ég ætlaði að hitta þau eitthvað yfir daginn varð ég líka að vera þar.
Hver hefur haft mest áhrif á þig í hestamennskunni?
Klárlega pabbi og mamma ég byrjaði í hestamennsku með þeim og þau hafa fylgt mér eftir og hjálpað mér mikið í gegnum tíðina.
Eftirminnilegasta augnablikið í hestamennskunni?
Þegar að mamma varð heimsmeistari. Fæ enn þá gæsahúð af því að hugsa til þess þegar að hún reið inn á völlinn í úrslitunum. Ég var aðstoðamaðurinn hennar í hesthúsinu allt mótið og að standa rétt hjá vellinum og horfa og hlusta á alla klappa, stappa og kalla nafnið hennar var engu líkt.
Hvað er það skemmtilegasta við hestamennskuna?
Að þetta sé fjölskylduíþrótt og allir, sama á hvað aldri þeir eru geta tekið þátt. Síðan er ekkert sem jafnast á við hestaferð í góðu veðri og í góðra vina hópi eða að ríða góðum hesti hvort sem er inn á velli, út í reiðtúr eða í annarri þjálfun.
Áttu þér uppáhalds hest? Hvað gerir hann sérstakan?
Já, held ég verði að nefna hann Brekkan minn frá Votmúla. Hann hefur verið sá hestur sem hefur mótað mig hve mest. Við höfum fylgst að síðustu átta árin, farið á Landsmót, komist inn á Íslandsmót og klárað saman námið á Hólum þar sem hann var 3.árs nemendahesturinn minn.
Hvernig líst þér á námskeiðið um helgina, verður þetta ekki mikið líf og fjör?
Jú ég er að vona það! Skráningin fór fram úr björtustu vonum þannig að ég er mjög spennt að hitta alla og kenna þeim eitthvað nýtt og skemmtilegt.

