Metþátttaka á innanhúsmóti

Hið árlega frjálsíþróttamót USVS innanhús fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn laugardag, 14. febrúar. Gaman er að segja frá því að þátttaka á mótinu var frábær. Um 70 keppendur voru skráðir til leiks, aldrei hafa fleiri verið skráðir á innanhúsmót USVS.

Keppendur voru frá Ungmennafélaginu ÁS sem hélt mótið í samstarfi við USVS, Ungmennafélaginu Kötlu, Ungmennafélaginu Heklu sem og frá nágrönnum okkar í austri hjá USÚ. Ástþór Jón Ragnheiðarson var mótsstjóri og þökkum við honum kærlega fyrir sína vinnu. Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum svo allt gengi eins vel og raunin varð!

Úrslit frá mótinu má nálgast hér á vef Roster Athletics: https://meets.rosterathletics.com/public/competitions/details/about?id=28101