Skráning fer fram hér: Vefverslun USVS á Sportabler
Innanhúsmót USVS á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 22. mars kl. 10:00
Keppnisflokkar eru eftirfarandi:
1.-3. bekkur
4.-6. bekkur
7.-10. bekkur
Í flokki 1.-3. bekkjar verður spilað í blönduðum liðum frá Ungmennafélögunum ÁS og Kötlu.
Í flokkum 4.-10. bekkjar verður spilað í svokölluðu stigaboltamóti. Allir spila jafn marga leiki en liðunum er breytt eftir hvern leik þannig sömu leikmenn eru aldrei saman í liði tvo leiki í röð. Um er að ræða einstaklingskeppni, þar sem gefin eru 10 stig fyrir að vera í sigurliði, 5 stig ef það verður jafntefli, 1 stig fyrir að skora mark, stoðsendingu og ef markvörður ver skot. Liðunum er stillt upp fyrirfram og því MJÖG mikilvægt að skráning liggi fyrir tímanlega, síðasti skráningardagur er föstudagur 20. mars.
Nánari upplýsingar gefur Siggi, framkvæmdastjóri USVS, í síma 691-9594 eða í tölvupósti, framkvaemdastjori@usvs.is
