Leið Vestur-Skaftfellinga lá að venju á Blönduós á Smábæjarleikana síðustu helgi, þann 14- 15. júní sl, og skemmtu sér konunglega.
Árangurinn var heldur ekki af verri gerðinni en 5. flokkur tryggði sér silfrið eftir mjög harða baráttu í undanúrslitum á sunnudeginum. Léku þau 6 leiki á laugardag, og unnu þrjá af þeim og gerðu eitt jafntefli. Á sunnudeginum var hart barist, þau komust í úrslit og þurftu að bíða ósigur með einu marki. Glæsilegur árangur hjá okkar krökkum.
6. flokkur stóð sig einnig með prýði og höfnuðu í 7. sæti af 12 liðum.
Í ár var USVS með tvö lið í 7. flokk en aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir til leiks með USVS, og ekki áður verið tvö lið í sama aldursflokknum. Mörg barnanna í 7. flokk voru að keppa í fyrsta sinn á Smábæjarleikunum, en þau höfnuðu í 4. og 7. sæti á mótinu.
Undirrituð vil fyrir hönd stjórn USVS þakka öllum foreldrum og forráðamönnum fyrir að taka þátt í þessu skemmtilega móti með krökkunum og Sigurði Eyjólfi Sigurjónssyni íþrótta – og æskulýðsfulltrúa Skaftárhrepps fyrir skipulag og utanumhald.
