Blog Post

Tímamótasamningur undirritaður

Tímamótasamningur undirritaður

56. sambandsþing USVS fór fram í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í gær. Þingið var vel sótt og afar viðburðaríkt.

Undir lok þingsins undirrituðu Jóhann Bragi Elínarson formaður USVS, Björn Þór Ólafsson oddviti Mýrdalshrepps og Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri Skaftárhrepps undir tímamóta samstarfssamning. Samning sem mun styðja og efla USVS, aðildarfélögin og samfélagið í Vestur-Skaftafellssýslu í heild sinni.

Í samningum segir m.a.: Samningi þessum er ætlað að efla starf USVS og aðildarfélaga þess með megináherslu á barna og unglingastarf auk þess að stuðla að auknu samstarfi USVS og sveitarfélaganna á sviði íþróttamála. Áhersla er lögð á mikilvægi þess öfluga starfs sem USVS og íþróttahreyfingin sinnir fyrir samfélagið í heild. Til þess að USVS geti rækt hlutverk sitt styrkja sveitarfélögin sambandið árlega með beinum og óbeinum fjárframlögum.

Samninginn í heild sinni má sjá hér að neðan.

Related Posts