56. sambandsþing USVS fór fram í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í gær. Þingið var vel sótt og afar viðburðaríkt.
Fulltrúi Ungmennafélags Íslands á þinginu var Ragnheiður Högnadóttir. Hún hélt ávarp og fjallaði um fjallaði þar m.a. um stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ, mikilvægi fyrirtækjanna Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, svæðisstöðvar íþróttahéraðanna og þá sjóði sem hægt er að sækja styrki í frá UMFÍ.
Að því loknu voru fimm félagar innan USVS heiðraðir. Þetta voru þær Erla Þórey Ólafsdóttir og Fanney Ólöf Lárusdóttir sem hlutu gullmerki UMFÍ og Árni Jóhannsson, Ólafur Magnússon og Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð hlutu starfsmerki UMFÍ.
USVS óskar þessum glæsilega hópi innilega til hamingju og þakkar fyrir ómetanlegt framlag á starfssvæði sambandsins í gegnum árin.
Nánari fréttir frá þinginu munu birtast hér á heimasíðunni í dag og næstu dag. Fylgist vel með! Nánar má lesa um verðlaunahafa hér neðar.

Nánar um þá sem hlutu viðurkenningar.
Gullmerki UMFÍ:
Erla Þórey Ólafsdóttir: Lagði mikið af mörkum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestur-Skaftafellssýslu í rúman áratug. Sat í stjórn USVS 2013-2017, framkvæmdastjóri 2017-2024 og formaður 2024-2025. Sat jafnframt um tíma í stjórn Ungmennafélagsins Ármanns.
Fanney Ólöf Lárusdóttir: Kom inni í stjórn Umf. Ármanns 2018, formaður frá 2019 og til dagsins í dag en nú í UMFÁS. Hefur sýnt mikinn dugnað og elju að byggja upp íþróttastarf fyrir fólk á öllum aldri í Skaftárhreppi. Hefur byggt upp traustan og góðan grunn sem samfélagið mun búa að til framtíðar. Til viðbótar við þetta sat Fanney í varastjórn USVS 2019-2022, meðstjórnandi 2022-2024 og ritari í stjórn 2024-2025.
Starfsmerki UMFÍ:
Árni Jóhannsson: Kom inni í stjórn USVS árið 2020 og hefur þar gegnt stöðu gjaldkera innan stjórnar til dagsins í dag. Hefur gefið mikið af sér undanfarin ár í þágu íþrótta- og æskulýðsstarf í Vestur-Skaftafellssýslu og alltaf tilbúinn að stökkva til ef eitthvað er, einn af þessum sem allir vilja hafa í sínu liði.
Ólafur Magnússon: Virkur félagi í Ungmennafélaginu Ármanni um langt skeið á síðustu öld. Einn af lykilmönnunum í uppbyggingu íþróttavallarins á Kleifum þar sem hann gaf af sér óteljandi vinnustundir. Ólafur átti alltaf lausa stund fyrir Ungmennafélagið Ármann og var til viðbótar við þetta mjög virkur í öllu mótastarfi bæði sem keppandi og sjálfboðaliði.
Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð: Burðarás í starfi Ungmennafélagsins Kötlu undanfarin ár. Hefur setið bæði í stjórn og varastjórn félagsins og er nú í nefndarstarfi. Hefur gengið í öll þau verk sem þarf að leysa sama hvort það varðar mótahald eða aðra viðburði. Frábær liðsmaður sem leggur sig alltaf fram af einlægum áhuga í því sem hún tekur sér fyrir hendur.
