Innanhúsmót USVS í fótbolta fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn sunnudag, 22. mars. Um 40 keppendur frá Ungmennafélögunum ÁS og Kötlu tóku þátt á mótinu sem tókst vel til.
Keppnisflokkarnir voru þrír, 1.-3. bekkur, 4.-6. bekkur og 7.-10. bekkur. Í yngsta hópnum spiluðu ÁS og Katla einn leik á móti hvort öðru, í seinni leiknum var spilað í blönduðum liðum og úr varð hið mesta fjör.
Í flokki 4.-6. bekkjar og 7.-10. bekkjar var spilað í svokölluðu stigaboltamóti þar sem keppendur safna stigum. Þar sem gefin eru stig fyrir að vera í sigurliði, jafntefli, skora mark, leggja upp mark og verja skot. Liðunum er svo alltaf breytt á milli leikja.
USVS færir sjálfboðaliðum sérstakar þakkir fyrir sitt framlag við framkvæmd mótsins sem og að sjálfsögðu keppendum, þjálfurum og foreldrum fyrir að mæta á staðinn og gera þetta svona skemmtilegt líkt og raunin varð.
Stigahæst í flokki 4.-6. bekkjar voru:
1. sæti Gunnar Ingi
2. sæti Kristmundur Rafn
3. sæti Rakel Arna
Stigahæstir í flokki 7.-10. bekkjar voru:
1. sæti Kristján Logi
2. sæti Kristófer Gunnar
3. sæti Þráinn Elís



