Íþróttamaður USVS 2019 er Birna Sólveig Kristófersdóttir.

Birna er metnaðarfullur og hæfileikaríkur íþróttamaður. Hún kemur vel fram, er kurteis og góð fyrirmynd. Hennar besti árangur á árinu 2019 í frjálsum íþróttum er 4. Sæti í stangarstökki, 3. Sæti í 400m hlaupi og þrístökki, 2.sæti í 1500m á Meistaramóti Íslands 15-22 ára innanhúss. Þá varð hún unglingalandsmótsmeistari í þrístökki og varð í 2. Sæti í 100m grindarhlaupi á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn.

Birna stundar einnig af miklu kappi fimleika hjá umf Hamar, fimleikadeild Selfoss og Fimleikaakademíu FSU. Henni eru allir vegir færir á íþróttasviðinu og verður gaman að fylgjast áfram með afrekum hennar í framtíðinni.

Efnilegasti íþróttamaður USVS 2019 er Stephanie Ósk Ingvarsdóttir. 

Stephanie vann mörg afrekin á frjálsíþróttavellinum á árinu 2019. Hún varð fjórfaldur Íslandsmeistari á Meistaramóti Íslands 11-14 ára innanhús og utanhús í langstökki og hástökki. Þá jafnaði hún Íslandsmetið í hástökki utanhús þegar hún stökk 1,56m á Meistaramóti Íslands á Laugardalsvelli. Mánuði síðar sló hún íslandsmetið þegar hún sökk 1,57m á Sumarmóti umf.Þórs og umf.Kötlu. Hún varð einnig fjórfaldur unglingalandsmótsmeistari í hástökki, langstökki, þrístökki og 60m hlaupi. Þetta er án efa hápunktar ársins hjá Stephanie en verðlaunin eru fjöldamörg á árinu og hún meðal þeirra bestu á landinu í flestum greinum.

Stephanie hefur mætt vel á æfingar, hún fer ávallt að fyrirmælum, er áhugasöm og metnaðarfull og leggur sig alla fram hvort sem er á æfingum eða í keppni. Stephanie hefur allt sem sannur afreksmaður þarf að hafa til að bera og það verður spennandi fylgjast með henni í framtíðinni.