01
Nov 2026
01
Nov 2026
27
Oct 2026
27
Oct 2026
Haustmót USVS í körfubolta
Haustmót USVS í körfubolta fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri sl. laugardag. Á mótið mættu til leiks lið frá 4 félögum, ÁS, Kötlu, Dímoni og Garpi. Keppendur vorum um 110 talsins. USVS þakkar öllum sem að mótinu komu fyrir skemmtilegan dag, ber þar sérstaklega að þakka sjálfboðaliðum innilega fyrir sitt framlag til mótsins. Það er staðreynd að án þeirra væri þetta ekki hægt, takk sjálfboðaliðar!
19
Oct 2026
Heilsuvika 1.-7. nóvember
Dagana 1.–7. nóvember stendur USVS fyrir heilsuviku í Vestur-Skaftafellssýslu. USVS hvetur aðildarfélög sín, önnur félagasamtök, fyrirtæki og íbúa á svæðinu til að taka virkan þátt í vikunni. Markmið Heilsuvikunnar er að vekja athygli á mikilvægi góðrar heilsu, hreyfingar og heilbrigðra lífshátta, auk þess að efla samstöðu og þátttöku í samfélaginu. Með sameiginlegu átaki viljum við hvetja íbúa á öllum aldri til að huga að eigin heilsu og nýta þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða í nærumhverfinu. Sérstök áhersla á forvarnir Að þessu sinni ætlar USVS að leggja sérstaka áherslu á forvarnir og fræðslu. Í tengslum við heilsuvikuna mun…
06
Oct 2026
Körfuboltamót USVS 24. október
Nú styttist óðum í fyrsta USVS mót vetrarins en það er körfuboltamót þann 24. október næstkomandi. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri og áætlað er að keppni hefjist kl. 10:00. Skráning fer fram hjá félögunum sem tilkynna þátttöku til USVS, fjöldi liða þarf að liggja fyrir mánudaginn 19. október. Nánari upplýsingar gefur Siggi, framkvæmdastjóri USVS, í síma 691-9594 eða í tölvupósti á netfangið framkvaemdastjori@usvs.is
28
Aug 2026
Héraðsmót á morgun – Stefnir í frábæra þátttöku
Hérðasmót USVS fer fram á íþróttavellinum í Vík á morgun. 52 keppendur eru skráðir sem gerir þetta að fjölmennasta Héraðsmóti USVS frá árinu 2016! Keppni hefst kl. 11:00 en allar nánari upplýsingar má finna inni á Roster Athletics, mótaforritinu. Smelltu hér til að fara inni á Roster Hlökkum til að sjá sem flesta á íþróttavellinum í Vík á morgun!
24
Aug 2026
Skráningu á Héraðsmót lýkur 27. ágúst
Nú styttist óðum í Héraðsmót USVS í frjálsíþróttum sem fram fer á Víkurvelli laugardaginn 29. ágúst næstkomandi. Skráningu lýkur kl. 13:00 fimmtudaginn 27. ágúst nk. Hægt er að skrá í Roster Athletics eða með því að senda tölvupóst á usvs@usvs.is Skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, upplýsingar um keppnisgreinar og félag.
18
Aug 2026
Andri Berg og Freyja Dögg Íslandsmeistarar
Tveir iðkendur Ungmennafélagsins Kötlu urðu Íslandsmeistarar um helgina, hvor í sinni greininni. Andri Berg Jóhannsson varð Íslandsmeistari í flokki MX2 í mótorkrossi. Um árangur Andra segir á Facebook síðu Ungmennafélagsins Kötlu: “Hann sigraði allar umferðirnar í sumar með fullt hús stiga! Þess má geta að þann 20. maí síðastliðinn handleggsbrotnaði Andri og sumarið leit ekki vel út fyrir hann. Hann lét það ekki stoppa sig og um leið og hann fékk grænt ljós hélt hann áfram að æfa og keppti 13. júní í fyrstu umferð sumarsins. Ótrúleg seigla og baráttuvilji hjá þessum efnilega íþróttamanni!“ Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð keppti…
11
Aug 2026
Setning Unglingalandsmóts
Setning 27. Unglingalandsmóts UMFÍ fór fram á Sauðárkróksvelli í kvöld, 31. júlí. Mót sem skipar stóran sess í íþróttastarfi í Vestur-Skaftafellssýslu. Ár eftir ár fjölmenna Vestur-Skaftfellingar á mótið og eiga þar skemmtilegar stundir bæði innan og utan vallar. Keppendur USVS á mótinu eru um 30 talsins að þessu sinni. Kristófer Gunnar Bjarkason var fánaberi USVS á setningunni og honum til halds og trausts voru þau Kristmundur Rafn Guðmundsson og Alexandra Hrönn Ágústsdóttir. Að baki er viðburðaríkur keppnisdagur og fjörið rétt að byrja.



