Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík. Á dagskrá eru hefðbundin fundarstörf og ber þar helst að nefna skýrslu stjórnar, ýmsar tillögur, stjórnar og nefndarkjör og önnur mál. Einnig mun fara fram kynning á sumarstarfi Umf.Kötlu, þar sem þjálfarar ásamt stjórn fara yfir dagskrá komandi mánaða og afhending og pöntun á æfingarfatnaði félagsins. Fjölmennum á fund !