Sambandsþing USVS var haldið á Hótel Laka 29. mars 2022. Þingið tókst vel og mættu 27 þingfultrúar af 30. Góðir gestir, þau Ragnheiður Högnadóttir frá UMFÍ og Andri Stefánsson frá ÍSÍ, komu á þingið og ávörpuðu fundarmenn.

 

Ragnheiður heiðraðir nokkra sjálfboðaliða USVS. Starfsmerki UMFÍ fengu Kristín Lárusdóttir, Fanney Ólöf Lárusdóttir og Eva Dögg Þorsteinsdóttir. Þessar konur eru vel af starfsmerkinu komnar enda hafa þær allar verið leiðandi íþróttastarfi í Vestur-Skaftafellssýslu síðustu ár. Gullmerki UMFÍ fékk Sigmar Helgason fyrir  óþrjótandi áhuga og vinnu fyrir íþróttastarfi.

 

Engar breytingar urðu á stjórn sambandsins. Formaður USVS er áfram Fanney Ásgeirsdóttir aðrir í stjórn eru: Sif Hauksdóttir, Sigmar Helgason, Árni Jóhannsson og Ragnar S. Þorsteinsson. Stjórn mun svo skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi. Varastjórn skipa þær Fanney Ólöf Lárusdóttir, Sabina Victoria Reinholdsdóttir og Kristín Ásgeirsdóttir.

 

Við  göngum inn í nýtt starfsár, bjartsýn á framtíðina og fullviss um að framundan sé skemmtilegt sumar, fullt af íþróttamótum, samverustundum og alls konar sameiginlegri gleði.