Blog Post

Föstudagsspjallið: Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir

Föstudagsspjallið: Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir

Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur.

Fyrsti viðmælandi föstudagsspjallsins er Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir, frá Ytri-Sólheimum í Mýrdal, sem hefur verið að gera það gott í hestamennskunni undanfarin ár. Sigríður mun á morgun, laugardag, hafa umsjón með námskeiði á vegum Hestamannafélagsins Sindra sem ber heitið “Fræðsla æskunnar”. Það er Æskulýðsnefnd Hmf. Sindra sem býður upp á námskeiðið.

Sigríður mun á námskeiðinu kenna grunn í umgengni og umhirðu hrossa. Einnig mun hún flytja erindið frá Pétursey til atvinnumennsku. Hún hefur stundað hestamennsku frá unga aldri, lauk námi á hestalínu FSu og starfar nú við tamningar og þjálfun. Á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi árið 2023 vann hún til silfurverðlauna í 100 metra skeiði á hryssunni Ylfu frá Miðengi.

USVS setti sig í samband við Sigríði og spurði hana nokkra spurninga um lífið og hestamennskuna.

Hvenær og hvers vegna byrjaðir þú í hestamennsku?
Man ekki nákvæmlega hvenær ég byrjaði, ég hef alltaf verið í hestum. Byrjaði af því allir aðrir í fjölskyldunni voru í hestamennsku og ég fylgdi þeim og er enn að.

Hver hefur haft mest áhrif á þig í hestamennskunni?
Klárlega stóri bróðir minn hann Þorsteinn Björn, hann hefur hjálpað mér alveg frá því ég var pínu lítil, hann hefur alltaf gefið sér tíma fyrir mig og hefur staðið við bakið á mér alveg frá upphafi og gerir enn.

Eftirminnilegasta augnablikið í hestmennskunni?
Heimsmeistaramótið, mjög skemmtileg minning, mun lifa á því mjög lengi. En svo verð ég líka að segja þegar ég varð í fyrsta skipti Íslandsmeistari í 100 metra skeiði. Það var mjög skemmtilegt augnablik af því að ég vissi að það átti engin von á þessu, ekki einu sinni ég sjálf. Eitthvað sem kom mjög skemmtilega á óvart.

Hvaða ráð myndir þú gefa 10 ára Sigríði í dag?
Að kunna meta litlu hlutina meira, ég er að læra það núna hversu góðir litlu hlutirnir eru.

Hvernig finnst þér að hafa umsjón með svona námskeiðum og miðla reynsu þinni til barna og ungmenna?
Mjög skemmtilegt að segja frá minni sögu af því að í hestamennsku þá er erfitt að ná langt nema eiga foreldra sem geta keypt góðan hest handa manni. Mér finnst gaman að segja frá því að ég kem úr mjög venjulegri fjölskyldu og ég hafi þurft að gera þetta svolítið mikið sjálf, gott að geta sýnt fram á að það er hægt að ná árangri svona þó að það sé erfiðara. En það er hægt!

Hvað er það skemmtilegasta við hestamennskuna?
Klárlega skemmtilegast að keppa í skeiðgreinum, elska adrenalínið, það er lang skemmtilegast. Svo að ná litlu markmiðunum í þjálfun á hestunum, bara það að ná því heima við í þjálfun er mjög skemmtilegt.

Related Posts