Blog Post

Föstudagsspjallið: Egill Atlason Waagfjörð

Föstudagsspjallið: Egill Atlason Waagfjörð

Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur.

Viðmælandi föstudagsspjallsins að þessu sinni er Egill Atlason Waagfjörð sem var á dögunum útnefndur íþróttamaður ársins hjá Ungmennafélaginu Kötlu. USVS heyrði í Agli en hann býr nú í New York þar sem hann stundar nám við St. Thomas Aquinas College í Sparkill, þar er hann í B.S. námi í hreyfivísindum (e. Exercise Science).

Hvernig hefur þér líkað lífið í New York?
Mér hefur líkað ágætlega, auðvitað smá menningarsjokk að koma í borg þar sem milljónir manna búa, komandi frá sveitabæ í Mýrdalnum. Skólinn er um það bil 40 mínútum norðan við borgina og er umkringdur skóglendi með fullt af alls konar dýrum sem maður hefur aldrei séð áður. Ég hef fengið tækifæri til að keppa á bestu innanhússvöllum í heimi og hef fengið að keppa gegn sumum af bestu skólum í landinu meðal annars Harvard og Columbia University. Þetta hefur verið mikið ævintýri en maður saknar samt alltaf Íslands.

Hverju ertu stoltastur af á þínum frjálsíþróttaferli?
Þegar ég var valinn í landsliðið til að keppa á Norðurlandameistaramótinu U20 í Uppsölum í Svíþjóð stendur upp úr, en ég held samt að ég sé stoltastur af því að ég hætti aldrei, þrátt fyrir marga djúpa dali sem maður sá ekki upp úr og endalausar áskoranir hélt ég alltaf áfram, sama hvað.

Hver er þín uppáhalds grein?
Ég hef gaman af öllum greinum í frjálsum en langstökk stendur alltaf upp úr fyrir mér.

Hver er þín helsta fyrirmynd?
Þegar kemur að frjálsum þá er það örugglega Vilhjálmur Einarsson, þrátt fyrir erfiðar aðstæður til að stunda frjálsar á þessum tíma tókst honum að komast á Ólympíuleikana og vinna silfur í þrístökki. Hann kennir mér að það þarf ekki allt að vera fullkomið til að ná góðum árangri, það sem skiptir meira máli er að læra að nýta sér það sem maður hefur í kringum sig og gott hugafar, þá er allt mögulegt!

Hver eru þín markmið sem íþróttamaður fyrir komandi ár, hvert stefnir þú?
Ég ætla mér að komast eins langt og ég get, halda áfram að æfa stíft, læra hvernig ég get gert betur og halda áfram að bæta mig. Eins og staðan er núna er svolítið óljóst hvað framtíðin ber í skauti sér en það kemur vonandi allt í ljós fljótlega.

Þegar þú ert ekki að æfa eða læra, hvað finnst þér skemmtilegt að gera í þínum tómstundum?
Ég hef mikinn áhuga á tónlist, það er einmitt eitt það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom út til Bandaríkjana, það var að kaupa mér gítar til að hafa inn í herbergi sem ég get gripið í og spilað. Það er klárlega það skemmtilegasta sem ég geri í frítímanum mínum.

Myndir: FRÍ / Hlín Guðmundsdóttir

Related Posts