Blog Post

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Hótel Laki

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Hótel Laki

Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Hótel Laka.

Með samningnum er Hótel Laki einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.

USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Hótel Laka bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.

USVS þakkar Hótel Laka kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Birnu Sigbjörnsdóttur, hótelstjóra á Hótel Laka, og Sigurð Eyjólf Sigurjónsson, framkvæmdastjóra USVS, handsala samninginn.

Related Posts