Tveir iðkendur Ungmennafélagsins Kötlu urðu Íslandsmeistarar um helgina, hvor í sinni greininni.
Andri Berg Jóhannsson varð Íslandsmeistari í flokki MX2 í mótorkrossi. Um árangur Andra segir á Facebook síðu Ungmennafélagsins Kötlu: “Hann sigraði allar umferðirnar í sumar með fullt hús stiga! Þess má geta að þann 20. maí síðastliðinn handleggsbrotnaði Andri og sumarið leit ekki vel út fyrir hann. Hann lét það ekki stoppa sig og um leið og hann fékk grænt ljós hélt hann áfram að æfa og keppti 13. júní í fyrstu umferð sumarsins. Ótrúleg seigla og baráttuvilji hjá þessum efnilega íþróttamanni!“
Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð keppti á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum 11-14 ára sem fram fór í Borgarnesi um nýliðna helgi. Þar náði hún þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í 300m hlaupi 13 ára stúlkna. En til viðbótar við þetta vann hún einnig til silfurverðlauna og þriggja bronsverðlauna.
USVS óskar þessu glæsilega og efnilega íþróttafólki innilega til hamingju með árangurinn.


