Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík.

Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík.

Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík. Á dagskrá eru hefðbundin fundarstörf og ber þar helst að nefna skýrslu stjórnar, ýmsar tillögur, stjórnar og nefndarkjör og önnur mál. Einnig mun fara fram kynning á sumarstarfi Umf.Kötlu, þar sem þjálfarar ásamt stjórn fara yfir dagskrá komandi mánaða og afhending og pöntun á æfingarfatnaði félagsins. Fjölmennum á fund !
Read More
Efnilegasti íþróttamaður ársins 2015 Þuríður Inga Gísladóttir

Efnilegasti íþróttamaður ársins 2015 Þuríður Inga Gísladóttir

Efnilegasti knapi hmf. Sindra árið 2015 hefur stundað hestamennsku frá barnæsku og tekið þátt á mótum hmf. Sindra iðullega með góðum árangri. Knapinn er verulega áhugasamur hestamaður og nýtir flestar sínar lausu stundir í hesthúsinu, hann hefur stundað nám á hestabraut í fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðin tvö ár og vann m.a. við tamningar og þjálfun síðastliðið sumar. Knapinn hefur tekið þátt á nokkrum mótum utan félagsins s.s. Fsu móti, íþróttamóti Sleipnis, gæðingamóti Geysis, stórmóti Geysis og Suðurlandsmóti yngri flokka, á öllum þessum mótum vann knapinn sér inn sæti í úrslitum. Knapinn tók einnig þátt á Íslandsmóti barna og unglinga með góðum…
Read More
Íþróttamaður ársins 2015 Krístín Lárusdóttir

Íþróttamaður ársins 2015 Krístín Lárusdóttir

Kristín er Hestamannafélaginu Kópi til sóma. Fagmannleg innan vallar sem utan. Á árinu hefur Kristín verið að keppa á mótum út um allt land, og staðið sig þar með mikilli prýði. Má þar nefna sem dæmi Svellkaldar og náði hún þar góðum árangri og endaði í fyrsta sæti á hestinum Þokka frá Efstu-Grund. Það sem að ber af á árinu hjá Kristínu er HM í Herning í Danmörku. En þar kom hún sá og sigraði, heimsmeistaratitillinn í tölti varð staðreyndin. Flottur árangur hjá Kristínu og teljum við að hún sé vel að þessum titli komin.
Read More
Ársþing USVS 2016

Ársþing USVS 2016

46. Ársþing USVS verður haldið á Hótel Laka þann 19. mars 2016 kl 10:00. Dagskrá skv. lögum USVS (sjá löginn hér). Frestur til að skila inn tillögum að laga og/eða reglugerðarbreytingum er eigi síðar en 12. mars n.k. 
Read More
Innanhúsmót USVS 2016

Innanhúsmót USVS 2016

Innanhúsmót í frjálsum íþróttum verður haldið í íþróttarhúsinu á Kirkjubæjarklaustri 27. febrúar. 2016 mótið hefst kl. 10:00.  Tekið er við skráningum í gegn um tölvupóst, netfangið er usvs@usvs.is skráning sendist með nafni og kennitölu keppenda ásamt hvaða keppnisgreinar viðkomandi vill keppa í. Keppnisgreinar fyrir fólk á öllum aldri, sjáumst hress. Aldursskipting. 7 ára og yngri Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Boltakast 8-9 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Boltakast 10-11 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Hástökk Kúluvarp 12-13 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Hástökk Kúluvarp 14 - 15…
Read More
Ráðstefna fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára á vegum UMFÍ

Ráðstefna fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára á vegum UMFÍ

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur nú í sjöunda sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna – geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og mun hún fara fram 16. – 18. mars á Hótel Selfossi. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni en jafnframt koma Héraðssambandið Skarphéðinn og Sveitarfélagið Árborg að undirbúningi. Ungmennaráð UMFÍ hefur fengið til liðs við sig fagfólk frá Kvíðameðferðarstöðinni. Áhersla verður lögð á óformlegt nám og virka þátttöku í vinnustofum ráðstefnunnar. Dagskrá verður með fjölbreyttu sniði, sjá dagskrá hér. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á…
Read More
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir umsóknum í Æskulýðssjóð USVS.

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir umsóknum í Æskulýðssjóð USVS.

Styrkhæf teljast verkefni sem uppfylla kröfur 5.gr reglugerðar USVS um Æskulýðssjóð grein Framlög úr æskulýðssjóði má veita til eftirtalinna verkefna, svo fremi að þau verkefni nýtist að öllu, eða mestöllu leyti, æsku aðildarfélaga USVS. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna Íþróttastarfs, svo sem keppnisferða og námskeiða á því sviði. Forvarnarstarfs gegn neyslu vímuefna. Tómstunda- og menningarstarfs Annarra verkefna sem snúa að æskulýðsmálum og teljast í samræmi við yfirlýst stefnumið UMFÍ og USVS. Reglugerð um Æskulýðssjóð Umsóknir berist til Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu með tölvupósti á usvs@usvs.is fyrir 1. Mars n.k Nánari upplýsingar veitir Gísli Steinar framkvæmdastjóri á netfanginu usvs@usvs.is.
Read More
Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Árleg þrettándagleði var haldin venju samkvæmt þann 6.janúar í Leikskálum, veitt verðlaun fyrir íþróttamann ársins , efnilegasta íþróttamann ársins og björtustu vonina að því loknu var spilað bingó. Ekkert varð af flugeldasýningu þetta árið vegna veðurs (aldrei þessu vant). Vetrarstarf hélst í sömu skorðum eftir áramót nema við dagskránna bættust frjálsíþróttaæfingar. Auk þeirra var boðið upp á æfingar í fimleikum, knattspyrnu og badminton. Boðið var upp á æfingar fyrir fullorðnar sem voru vel sóttar. Í lok janúar var haldinn súpufundur á vegum stjórnar Kötlu þar sem gerð var tilraun til að ná foreldrum nær starfi ungmennafélagsins og skapa umræðu um…
Read More
Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Fundurinn er haldinn á Icelandair Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, miðvikudaginn 16. desember, kl 20:00. Þeir sem eru boðaðir á fundinn eru stjórn og varastjórn USVS og formenn allra aðildarfélaga USVS. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Stefnumótunarnefnd. Munnlegar skýrslur frá formönnum félaga. Samæfingar Sýsluþjálfari. Önnur mál.
Read More