Gistimöguleikar í nágrenni við Landsmót UMFÍ 50+ í Vík

Gistimöguleikar í nágrenni við Landsmót UMFÍ 50+ í Vík

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Vík í Mýrdal helgina 7. – 9. júní í sumar. Keppt verður í fjölmörgum greinum þessa helgi þar sem gleði mun skína úr hverju andliti. Búast má við fjölmörgum keppendum og gestum þessa helgi því er mikilvægt að panta gistingu sem fyrst. Hér að neðan má sjá þá gistimöguleika sem eru í Vík og nágrenni. Tjaldsvæðið Vík (Í Vík) Tjaldsvæðið í Vík er á besta stað í Vík og þar er að finna flesta þá þjónustu sem ferðalanga getur vantað auk þess sem allir helstu staðir og verslanir í Vík eru í auðveldri göngufjarlægð.…
Read More
Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Ákveðið hefur verið í hvaða  keppnisgreinum verður keppt í á 3. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vík í Mýrdal næsta sumar. Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða afþreying fyrir keppendur og gesti. Einnig verður boðið upp á fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), Ungmennafélags Íslands og Mýrdalshrepps. Fyrirhugaðar keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, boccia, bridds, golf, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, sund, sýningar, þríþraut og hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri…
Read More
Landsmótsnefnd kom saman

Landsmótsnefnd kom saman

3. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 7.–9. júní 2013 í Vík í Mýrdal. Fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga 2011 og í sumar sem leið var annað mótið haldið í Mosfellsbæ og tókst einstaklega vel. Mótið er sérstaklega ætlað fólki 50 ára og eldra. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur Skaftafellssýslu, í samstarfi við Mýrdalshrepp. Mótið er íþrótta- og heilsuhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru Frjálsar, sund, boccia, golf, pútt, skák, bridds, starfsíþróttir,  Ringó,  hestaíþróttir, línudans, sýningarhópar, þríþraut, almenningshlaup,…
Read More
Úrslit frá Íþróttahátíð USVS

Úrslit frá Íþróttahátíð USVS

Fín þátttaka var á Íþróttahátíð USVS og skemmtu keppendur, áhorfendur og starfsmenn sér konunglega í öllum íþróttagreinum. Keppt var í Frjálsum íþróttum, Hestaíþróttum og Golfi. Hér koma úrslit í Hestaíþróttum, Golfi og stigakeppni í frjálsum.   Golf Eggert Skúlason 1.sæti Börkur Bragi Baldvinsson 2.sæti   Hestaíþróttir Úrslit af vefsíðu Sindra   Frjálsar Úrslit í einstökum greinum má finna á vef FRÍ, www.fri.is Stigakeppni einstaklinga Fullorðinsflokkur            Arnar Snær Ágústsson 15-16 ára                             Þorsteinn Björn  Einarsson 13-14 ára                             Ástþór Jón Tryggvason og Katla Björg Ómarsdóttir 11-12 ára                             Guðmundur Elíasson 9-10 ára                               Tinna Elíasdóttir og Bergur Már Guðmundsson
Read More
Íþróttahátíð USVS í Vík 25.-26.ágúst

Íþróttahátíð USVS í Vík 25.-26.ágúst

Íþróttahátíð USVS verður haldin helgina 25.-26.ágúst í Vík. Vonumst við til að sjá sem flesta keppendur á öllum aldri. Ætlunin er að gera þetta að fjölskylduhátíð þar sem eitthvað verður í boði fyrir alla. Keppt verður í frjálsum íþróttum, hestaíþróttum, golfi, fótbolta og skemmtidagskrá verður á laugardagkvöldinu. Skráningarfrestur er fimmtudaginn 23.ágúst kl.21.00. Dagskrá Frjálsar íþróttir       laugardagur kl.10-15 Umsjón: Umf Katla, Umf Ármann og Umf Skafti Fótbolti                  laugardagur kl.15-18 Umsjón: Umf Katla og Umf Ármann Skemmtidagskrá    laugardagur kl.18-21 Umsjón: USVS Golf                  …
Read More
Unglingalandsmót á Selfossi

Unglingalandsmót á Selfossi

 Skráningar Allir sem ætla að taka þátt þurfa að skrá sig og er síðasti séns til þess að gera það sunnudagurinn 29.júlí. Hægt er að skrá sig á vef unglingalandsmótsins:  ulm.is  eða með því að senda tölvupóst á usvs@usvs.is"> usvs@usvs.is Skráningargjald er kr 6.000,- pr keppenda. Umf. Katla ætlar að greiða helming af skráningargjaldi fyrir sína keppendur þ.e. 3.000 kr. Hmf. Sindir ætlar að greiða helming af skráningargjaldi fyrir sína keppendur þ.e. 3.000 kr. Gjaldið skal greiða inn á reikning USVS 0317-26-9220 kt: 670269-0199   Hópstjórar Hópstjórar á landsmótinu verða Kjartan Kárason og Ragnheiður Högnadóttir. Hjördís Rut Jónsdóttir mun sjá um allt…
Read More