Föstudagsspjallið: Egill Atlason Waagfjörð

Föstudagsspjallið: Egill Atlason Waagfjörð

Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur. Viðmælandi föstudagsspjallsins að þessu sinni er Egill Atlason Waagfjörð sem var á dögunum útnefndur íþróttamaður ársins hjá Ungmennafélaginu Kötlu. USVS heyrði í Agli en hann býr nú í New York þar sem hann stundar nám við St. Thomas Aquinas College í Sparkill, þar er hann í B.S. námi í hreyfivísindum (e. Exercise Science). Hvernig hefur þér líkað lífið í New York? Mér hefur líkað ágætlega, auðvitað smá menningarsjokk að koma í borg þar sem milljónir manna búa, komandi frá…
Read More
Skráning hafin á innanhúsmót í fótbolta

Skráning hafin á innanhúsmót í fótbolta

Skráning fer fram hér: Vefverslun USVS á Sportabler Innanhúsmót USVS á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 22. mars kl. 10:00 Keppnisflokkar eru eftirfarandi:1.-3. bekkur4.-6. bekkur7.-10. bekkur Í flokki 1.-3. bekkjar verður spilað í blönduðum liðum frá Ungmennafélögunum ÁS og Kötlu. Í flokkum 4.-10. bekkjar verður spilað í svokölluðu stigaboltamóti. Allir spila jafn marga leiki en liðunum er breytt eftir hvern leik þannig sömu leikmenn eru aldrei saman í liði tvo leiki í röð. Um er að ræða einstaklingskeppni, þar sem gefin eru 10 stig fyrir að vera í sigurliði, 5 stig ef það verður jafntefli, 1 stig fyrir að skora mark, stoðsendingu og…
Read More
Föstudagsspjallið: Svanhildur Guðbrandsdóttir

Föstudagsspjallið: Svanhildur Guðbrandsdóttir

Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur. Viðmælandi föstudagsspjallsins að þessu sinni er reiðkennarinn Svanhildur Guðbrandsdóttir frá Syðri-Fljótum í Meðallandi. Hún mun um helgina hafa umsjón með reiðnámskeiði í samstarfi við Hestamannafélagið Kóp. USVS setti sig í samband við Svanhildi og spurði hana nokkra spurninga um lífið og hestamennskuna. Hvenær og hvers vegna byrjaðir þú í hestamennsku?Ég veit ekki hvenær ég byrjaði en hef verið í kringum hesta frá því að ég man eftir mér. Það hefur einhvern veginn alltaf verið sjálfsagt að hestar væru partur…
Read More
Föstudagsspjallið: Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir

Föstudagsspjallið: Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir

Föstudagsspjallið er nýr liður hjá USVS þar sem við fáum vikulegar fréttir úr starfi aðildarfélaganna og rifjum upp gamlar USVS sögur. Fyrsti viðmælandi föstudagsspjallsins er Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir, frá Ytri-Sólheimum í Mýrdal, sem hefur verið að gera það gott í hestamennskunni undanfarin ár. Sigríður mun á morgun, laugardag, hafa umsjón með námskeiði á vegum Hestamannafélagsins Sindra sem ber heitið "Fræðsla æskunnar". Það er Æskulýðsnefnd Hmf. Sindra sem býður upp á námskeiðið. Sigríður mun á námskeiðinu kenna grunn í umgengni og umhirðu hrossa. Einnig mun hún flytja erindið frá Pétursey til atvinnumennsku. Hún hefur stundað hestamennsku frá unga aldri, lauk námi…
Read More
Metþátttaka á innanhúsmóti

Metþátttaka á innanhúsmóti

Hið árlega frjálsíþróttamót USVS innanhús fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn laugardag, 14. febrúar. Gaman er að segja frá því að þátttaka á mótinu var frábær. Um 70 keppendur voru skráðir til leiks, aldrei hafa fleiri verið skráðir á innanhúsmót USVS. Keppendur voru frá Ungmennafélaginu ÁS sem hélt mótið í samstarfi við USVS, Ungmennafélaginu Kötlu, Ungmennafélaginu Heklu sem og frá nágrönnum okkar í austri hjá USÚ. Ástþór Jón Ragnheiðarson var mótsstjóri og þökkum við honum kærlega fyrir sína vinnu. Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum svo allt gengi eins vel og raunin varð!…
Read More