06
Aug 2026
24
Jul 2026
Skráningu á Unglingalandsmót lýkur á sunnudaginn
Skráningu á Unglingalandsmót lýkur á sunnudaginn! Skráning fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/umfi?returnTo=%2F%3Fcountry%3DIS%26mode%3Dprograms%26search%3Dunglinga Börn og unglingar í Vestur-Skaftafellssýslu taka þátt á Unglingalandsmóti sér að kostnaðarlausu þökk sé styrktaraðilum USVS. Takk fyrir stuðninginn!
06
Jul 2026
Vilt þú panta nýja USVS keppnisbúninginn?
Nú í sumar breytist útlit USVS keppnisbúninganna. Lögð var áhersla á að gjörbreyta þeim ekki til þess að áfram verði hægt að nota gamla búninginn með sem hefur verið í notkun sl. 4 árin, þannig þeir sem eiga nú þegar USVS treyju þurfa ekkert frekar að panta nýja frekar en þeir vilja. Pantað er frá Henson og eru þetta stærðirnar:86cm / 92cm / 98cm / 104cm / 110cm / 116cm / 122cm / 128cm / 134cm / 140cm / 146cm / 152cm / 158cm / 164cm (XS) / 170cm (S) / 180cm (M) / 186cm (L) / 192cm (XL)…
06
Jul 2026
Fjórir keppendur frá USVS á Landsmóti UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ fór fram í Eyjafirði dagana 26.-28. júní sl. Stærstur hluti mótsins fór fram í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit en einnig var keppt á Akureyri og á Dalvík. Mótið var hið glæsilegasta og vel að öllu staðið. Keppnisgreinarnar í ár voru alls 19 talsins, badminton, boccia, bogfimi, brennibolti, bridds, fjölskylduhlaup, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, hjólreiðar, pílukast, pokavarp, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, skotfimi, stígvélakast og sund. Keppendur USVS á mótinu voru þau Hafdís Eggertsdóttir, Ragnheiður Högnadóttir, Sabina Victoria Reinholdsdóttir og Sveinn Þorsteinsson. Landsmót UMFÍ 50+ fer fram á Hellu dagana 25.-27. júní á næsta ári. Hér að neðan má…
23
Jun 2026
Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Húsá ehf.
Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Húsá ehf.Með samningnum er Húsá ehf. einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Húsá ehf. með merki Sólheimahjáleigu Guesthouse bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar Húsá ehf. kærlega fyrir stuðninginn…
19
Jun 2026
Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Katlatrack
Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Katlatrack. Með samningnum er Katlatrack einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Katlatrack bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar Katlatrack kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins. Á meðfylgjandi mynd…
16
Jun 2026
Frábærir Smábæjaleikar á Blönduósi
USVS lét sig ekki vanta á hina árlegu Smábæjaleika á Blönduósi. Þetta var sjötta árið í röð sem keppendur úr Vestur-Skaftafellssýslu fjölmenna á mótið. Að þessu sinni voru 19 keppendur skráðir frá USVS í tveimur liðum, eitt lið í 7. flokki og eitt í 6. flokki. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og sýndu glæsileg tilþrif og takta, skoruðu fullt af mörkum og það sem mestu máli skiptir höfðu gaman saman. Keppni á svona mótum er aðeins lítill hluti af þessu öllu saman því samveran utan vallar er einnig afar gefandi og skemmtileg. Keppni fór fram bæði á laugardegi…
15
Jun 2026
Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Völustakkur
Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Dýralæknaþjónustunnar Völustakks. Með samningnum er Völustakkur einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Völustakk bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar Völustakki kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins. Á meðfylgjandi…
10
Jun 2026
Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Smiðjan
Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Smiðjunnar. Með samningnum er Smiðjan einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Smiðjuna bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar Smiðjunni kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins. Á meðfylgjandi mynd…
10
Jun 2026
Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Hótel Laki
Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Hótel Laka. Með samningnum er Hótel Laki einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Hótel Laka bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar Hótel Laka kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til…

