Námskeið í boccia haldið í Vík í tengslum við Landsmót UMFÍ 50+

Námskeið í boccia haldið í Vík í tengslum við Landsmót UMFÍ 50+

3. Landsmót Ungmennafélags Íslands 50+ verður haldið í Vík í Mýrdal dagana 7.-9. júní í sumar. Aðstæður allar í Vík eru til fyrirmyndar en mikið uppbyggingarstarf fór fram samfara unglingalandsmótinu sem haldið var 2005 í bænum. Byggður var fyrsta flokks frjálsíþróttavöllur en auk hans eru góðar aðstæður í íþróttahúsinu og til keppni í sundi. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða afþreying fyrir keppendur og gesti. Einnig verður boðið upp á fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða. Keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, boccia, bridds, golf, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, sund, sýningar, þríþraut…
Read More
Gistimöguleikar í nágrenni við Landsmót UMFÍ 50+ í Vík

Gistimöguleikar í nágrenni við Landsmót UMFÍ 50+ í Vík

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Vík í Mýrdal helgina 7. – 9. júní í sumar. Keppt verður í fjölmörgum greinum þessa helgi þar sem gleði mun skína úr hverju andliti. Búast má við fjölmörgum keppendum og gestum þessa helgi því er mikilvægt að panta gistingu sem fyrst. Hér að neðan má sjá þá gistimöguleika sem eru í Vík og nágrenni. Tjaldsvæðið Vík (Í Vík) Tjaldsvæðið í Vík er á besta stað í Vík og þar er að finna flesta þá þjónustu sem ferðalanga getur vantað auk þess sem allir helstu staðir og verslanir í Vík eru í auðveldri göngufjarlægð.…
Read More
Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Ákveðið hefur verið í hvaða  keppnisgreinum verður keppt í á 3. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vík í Mýrdal næsta sumar. Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða afþreying fyrir keppendur og gesti. Einnig verður boðið upp á fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), Ungmennafélags Íslands og Mýrdalshrepps. Fyrirhugaðar keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, boccia, bridds, golf, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, sund, sýningar, þríþraut og hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri…
Read More
Landsmótsnefnd kom saman

Landsmótsnefnd kom saman

3. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 7.–9. júní 2013 í Vík í Mýrdal. Fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga 2011 og í sumar sem leið var annað mótið haldið í Mosfellsbæ og tókst einstaklega vel. Mótið er sérstaklega ætlað fólki 50 ára og eldra. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur Skaftafellssýslu, í samstarfi við Mýrdalshrepp. Mótið er íþrótta- og heilsuhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru Frjálsar, sund, boccia, golf, pútt, skák, bridds, starfsíþróttir,  Ringó,  hestaíþróttir, línudans, sýningarhópar, þríþraut, almenningshlaup,…
Read More