Kynningarfundur á Landsmóti UMFÍ 50+ í Leikskálum
Allir íbúar Mýrdalshrepps og nágrennis,félagar innan vébanda USVS auk allra sem að áhuga hafa fyrir landsmóti 50+ eru velkomnir á kynningarfund í Leikskálum þriðjudaginn 21.maí kl.20. Kynnt verður dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður dagana 7.-9.júní í Vík. Einnig verður útskýrt hvernig hægt er að taka þátt sem keppandi og sjálfboðaliði, greinarnar kynntar sem og aðrir viðburðir í kringum mótið. Það er mikilvægt að allir íbúar standi saman að því að gera þetta mót hið glæsilegasta í alla staði. Gestir koma alls staðar að af landinu og þurfa þeir á þjónustu að halda alla helgina, verður þetta mikil…








