Starfsmerki UMFÍ
Vilborg Smáradóttir, Vigfús Þ. Hróbjartsson, Linda Agnarsdóttir og Stefán Jónsson voru öll sæmd starfsmerki UMFÍ á ársþingi USVS. Ársþingið fór fram á Kirkjubæjarklaustri á laugardaginn. Stefán Jónsson er félagi í Hestamannafélaginu Kópi og hefur verið það í tæp 55 ár eða frá stofnun þess þann 30.júní 1963.Stefán hefur ætíð verið áhugasamur um starfsemi félagsins og unnið óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf í þágu þess. Hann er ávallt mættur manna fyrstur t.d. þegar blásir er til leiks við undirbúning á mótsvæðinu fyrir mótahald og til ýmiskonar verka sem ekki eru endilega svo sýnileg en eru mikilvæg starfsemi félagsins. Hann er virkur þátttakandi í…






