Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum í Hreyfiviku.

Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum í Hreyfiviku.

Hreyfivika  heppnaðis mjög vel þetta árið. Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum. Á mánudaginn var samstarfsverkefni Lögreglunnar, Ungmennafélagsins Kötlu og Grunnskólans. Lögreglan fór með nemendur í elstu bekkjum grunnskólans í hjólaferð þar sem einnig var farið yfir helstu umferðareglur. Það var líka fjör í leikskólanum á mánudaginn. Þar var um að ræða samstarf Lögreglu, Ungmennafélags Kötlu  og leikskólans og var farið með eldri deild leikskólans í gönguferð og farið yfir helstu umferðarreglur.  Stærsti viðburður Ungmennafélagsins Kötlu var síðan Mýrdalshlaupið sem var haldið laugardaginn 3. júní. Það tóku þátt 21 hlauparar í hlaupinu. Tveir landsliðsmenn tóku þátt í hlaupinu þeir Guðni Páll…
Read More
Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Árleg þrettándagleði var haldin venju samkvæmt þann 6.janúar í Leikskálum, veitt verðlaun fyrir íþróttamann ársins , efnilegasta íþróttamann ársins og björtustu vonina að því loknu var spilað bingó. Ekkert varð af flugeldasýningu þetta árið vegna veðurs (aldrei þessu vant). Vetrarstarf hélst í sömu skorðum eftir áramót nema við dagskránna bættust frjálsíþróttaæfingar. Auk þeirra var boðið upp á æfingar í fimleikum, knattspyrnu og badminton. Boðið var upp á æfingar fyrir fullorðnar sem voru vel sóttar. Í lok janúar var haldinn súpufundur á vegum stjórnar Kötlu þar sem gerð var tilraun til að ná foreldrum nær starfi ungmennafélagsins og skapa umræðu um…
Read More