Vormót USVS í körfubolta fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri í gær. Mótið var vel sótt og voru keppendur um 70 talsins frá fjórum félögum, ÁS og Kötlu í Vestur-Skaftafellssýslu og úr Rangárvallasýslu Dímon og Garpur. Alls voru spilaðir 27 leikir á mótinu.
USVS færir öllum sem að mótinu komu kærar þakkir og sérstakar þakkir til allra þeirra sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum, eins og við vitum öll væri þetta ekki hægt án þeirra!
Þetta var síðasta USVS mót vetrarsins 2025-2026 en við vekjum athygli á uppfærðu viðburðadagatali hér á heimasíðunni. Aðildarfélög eru hvött til að hafa samband við framkvæmdastjóra USVS séu þau með viðburð/i sem þau vilja bæta við dagatalið.

