Eins og greint hefur verið frá hér á heimasíðu USVS síðustu daga var sambandsþingið síðastliðinn föstudag afar viðburðaríkt. Nú þegar hefur verið greint frá þeim viðurkenningum sem veitt voru á þinginu sem og frá þeim tímamótasamningi sem undirritaður var undir lok þingsins.
Góðir gestir sóttu þingið
Eins og alltaf sóttu fulltrúar frá UMFÍ og ÍSÍ þingið. Ragnheiður Högnadóttir sótti þingið fyrir hönd Ungmennafélags Íslands og fulltrúi Íþróttasambands Íslands var Hafsteinn Pálsson. Fulltrúar sveitarfélaganna sóttu þingið, frá Mýrdalshreppi þeir Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Björn Þór Ólafsson oddviti. Frá Skaftárhreppi Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri og Jóhannes Gissurarson oddiviti.
Rakel Magnúsdóttir svæðisfulltrúi UMFÍ og ÍSÍ á Suðurlandi mætti á þingið. Einnig er gaman að segja frá því að USVS bauð stjórnum HSK og ÍBV að sækja þingið en formaður og framkvæmdastjóri USVS sóttu einmitt Héraðsþing HSK í lok mars. Því var sérstaklega ánægjulegt að Guðríður Aadnegard formaður HSK sótti þingið hjá USVS og þökkum við henni sem og öllum öðrum gestum kærlega fyrir komuna!
Samstarf íþróttahérðanna á Suðurlandi fer vaxandi með hverjum deginum sem líður sem er afar ánægjulegt!

Þingstörf gengu vel – fjöldi lagabreytinga samþykktur
Fyrir þinginu lágu níu þingskjöl til umfjöllunar, þar á meðal tillögur að lagabreytingum. USVS stefnir inni í hóp Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ og þar af leiðandi þurfa lög sambandsins að hljóta staðfestingu Íþróttasambands Íslands. Það er megin ástæða fyrir þeim fjölda tillagna að lagabreytingum sem lagðar voru fyrir þingið. Þingstörf gengu afar vel fyrir sig og ekki annað að heyra að mikil ánægja hafi verið meðal þingfulltrúa og gesta með framkvæmd þingsins.

Ný stjórn kjörin
Að vanda fór fram stjórnarkjör á þinginu. Jóhann Bragi Elínarson var þar kjörinn formaður USVS en hann hafði verið starfandi formaður sambandsins frá því í nóvember 2025 þegar Sunna Wiium lét af formennsku. Árni Jóhannsson, Unnur Blandon og Rannveig Ólafsdóttir voru endurkjörin og ný inn í stjórnina kemur Arna Guðbjörg Matthíasdóttir. Rannveig var kjörin varamaður á síðasta þingi en kom inni í aðalstjórn við formannsbreytingarnar í nóvember.
Varamenn í stjórn voru kjörnar þær Arnfríður Sædís Jóhannesdóttir, Sabina Victoria Reinholdsdóttir og Þuríður Lilja Valtýsdóttir. Þær Þuríður og Victoria voru endurkjörnar en Arnfríður kemur ný inn.
Fanney Ólöf Lárusdóttir gaf ekki kost á sér áfram í stjórn en hún kom fyrst inn sem varamaður í stjórn árið 2019, meðstjórnandi frá 2022-2025 og nú síðasta árið ritari í aðalstjórn. Undir lok þingsins færði fráfarandi stjórn sambandsins henni þakklætisvott fyrir samstarfið undanfarin ár og hennar framlag til USVS.
Skoðunarmenn reikninga voru kjörnar þær Kolbrún Magga Matthíasdóttir og Sæunn Káradóttir. Til vara Auður Eyþórsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir. Í kjörnefnd USVS voru kjörnir þeir Jóhannes Gissurarson og Sveinn Þorsteinsson.
Hér má lesa fleiri fréttir frá 56. sambandsþingi USVS:
