Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Húsá ehf.
Með samningnum er Húsá ehf. einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.
USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Húsá ehf. með merki Sólheimahjáleigu Guesthouse bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.
USVS þakkar Húsá ehf. kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Eyjólf Sigurjónsson framkvæmdastjóra USVS, og Elínu Einarsdóttur eiganda Húsá ehf., handsala samninginn.
