Blog Post

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Volcano Hotel

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Volcano Hotel

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Volcano Hotel.

Með samningnum er Volcano Hotel einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.

USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Volcano Hotel bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.

USVS þakkar Volcano Hotel kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jóhann Braga Elínarson, formann USVS, og Kolbrúnu Ósk Guðjónsdóttur, eiganda Volcano Hotel, handsala samninginn.

Related Posts