Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Dýralæknaþjónustunnar Völustakks.
Með samningnum er Völustakkur einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.
USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Völustakk bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.
USVS þakkar Völustakki kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Hörpu Ósk Jóhannesdóttur, eiganda Völustakks, og Sigurð Eyjólf Sigurjónsson, framkvæmdastjóra USVS, handsala samninginn.
