Blog Post

Vill fyrirtækið þitt styðja við USVS?

Vill fyrirtækið þitt styðja við USVS?

Undirbúningur fyrir mótastarf sumarsins er nú í fullum gangi hjá USVS. Hápunktar í starfi hvers sumars er þátttaka á Smábæjaleikunum á Blönduósi sem og á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki að þessu sinni.

Til að jafna möguleika iðkenda USVS á þátttöku sem mest leggjum við upp með að iðkendur USVS geti tekið þátt á mótum sumarsins sér að kostnaðarlausu, einnig munu keppendur fá peysu að gjöf og keppnisbúningur verður niðurgreiddur að hluta.

USVS leitar nú til fyrirtækja sem hafa áhuga á að styðja við þetta starf. USVS býður áhugasömum að kaupa auglýsingu á keppnisbúninginn og með því fylgir einnig auglýsing á peysum. Nánari upplýsingar gefur Siggi framkvæmdastjóra USVS, endilega sendið honum póst á framkvaemdastjori@usvs.is ef þetta er eitthvað sem þið viljið skoða nánar!

Related Posts