Blog Post

Vilt þú panta nýja USVS keppnisbúninginn?

Vilt þú panta nýja USVS keppnisbúninginn?

Nú í sumar breytist útlit USVS keppnisbúninganna. Lögð var áhersla á að gjörbreyta þeim ekki til þess að áfram verði hægt að nota gamla búninginn með sem hefur verið í notkun sl. 4 árin, þannig þeir sem eiga nú þegar USVS treyju þurfa ekkert frekar að panta nýja frekar en þeir vilja.

Pantað er frá Henson og eru þetta stærðirnar:
86cm / 92cm / 98cm / 104cm / 110cm / 116cm / 122cm / 128cm / 134cm / 140cm / 146cm / 152cm / 158cm / 164cm (XS) / 170cm (S) / 180cm (M) / 186cm (L) / 192cm (XL) / 198cm (XXL)

Keppnisbúningurinn verður niðurgreiddur fyrir iðkendur eins mikið og svigrúm er til (það verður tekið saman í lok sumars þegar öll mót eru að baki). Ef einhver fullorðinn vill panta nýju treyjuna stendur það einnig til boða, stök treyja kostar 8400 kr.

Allar pantanir berist á netfangið framkvaemdastjori@usvs.is – síðasti pöntunardagur er miðvikudagur 8. júlí.

Related Posts