Blog Post

USVS er Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

USVS er Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

USVS varð í kvöld þrettánda íþróttahéraðið sem kemst í hóp Fyrirmyndarhéraða Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Það var Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ sem afhenti fulltrúum USVS viðurkenninguna á viðburði sem skipulagður var fyrir þetta tilefni í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík. Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, flutti afar áhugaverðan fyrirlestur að lokinni afhendingu viðurkenningarinnar.

Viðburðurinn var afar vel sóttur og færum við öllum þeim sem sáu sér fært að mæta bestu þakkir fyrir koma og fagna þessum áfanga með okkur. Að lokum var boðið upp á súpu og brauð frá Súpufélaginu og þökkum við þeim kærlega fyrir okkur!

En hvað þýðir það að vera Fyrirmyndarhérað ÍSÍ? Hér er um að ræða gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að starfi íþróttahéraða. Íþróttahéruð geta sótt um viðurkenninguna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þessi skilyrði eru m.a. skýrt skipurit og hlutverk stjórnarmanna og starfsmanna. Stefnur er snúa að fræðslu, forvörnum, jafnrétti, umhverfi og félagsmálum. Einnig má nefna persónuverndarstefnu sem og siðareglur, ásamt ýmsum öðrum gögnum er snúa að starfsemi íþróttahéraða. Allt eru þetta mikilvægir þættir sem styðja við starfið okkar og gera það faglegra. Öll þessi gögn hafa verið tekin saman í gæðahandbók USVS sem nú þegar er aðgengileg hér á heimasíðunni.

Á meðfylgjandi mynd má sjá frá vinstri, Sigurð Eyjólf Sigurjónsson framkvæmdastjóra USVS, Jóhann Braga Elínarson formann USVS og Willum Þór Þórsson forseta ÍSÍ.

Related Posts