Blog Post

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Súpufélagið

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Súpufélagið

Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Súpufélagsins.

Með samningnum er Súpufélagið einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.

USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Súpufélagið bæði á keppnistreyju sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.

USVS þakkar Súpufélaginu kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jóhann Braga Elínarson, formann USVS, og Kristrúnu Friðsemd Sveinsdóttur, einn af eigendum Súpufélagsins, handsala samninginn.

Related Posts