Blog Post

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Arctic Adventures

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Arctic Adventures

Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Arctic Adventures.

Með samningnum er Arctic Adventures einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.

USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa Arctic Adventures bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.

USVS þakkar Arctic Adventures kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Sergio Pancadas, hótelstjóra á Adventure Hótel Geirland sem undirritaði samninginn fyrir hönd Arctic Adventures, og Sigurð Eyjólf Sigurjónsson, framkvæmdastjóra USVS, handsala samninginn.

Related Posts