USVS lét sig ekki vanta á hina árlegu Smábæjaleika á Blönduósi. Þetta var sjötta árið í röð sem keppendur úr Vestur-Skaftafellssýslu fjölmenna á mótið.
Að þessu sinni voru 19 keppendur skráðir frá USVS í tveimur liðum, eitt lið í 7. flokki og eitt í 6. flokki. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og sýndu glæsileg tilþrif og takta, skoruðu fullt af mörkum og það sem mestu máli skiptir höfðu gaman saman. Keppni á svona mótum er aðeins lítill hluti af þessu öllu saman því samveran utan vallar er einnig afar gefandi og skemmtileg. Keppni fór fram bæði á laugardegi og sunnudegi. Þar að auki var boðið upp á kvöldvöku á laugardagskvöldinu þar sem tónlistarmaðurinn Ágúst sá um að halda uppi stuðinu.
Árangur liðanna var flottur, 7. flokkur lauk keppni í 6. sæti af 11 liðum og 6. flokkur í 7. sæti af 15 liðum. Ekki var annað að heyra en allir hefðu skemmt sér afar vel um helgina, bæði börn og fullorðnir. Alltaf jafn gaman og þökkum við vinum okkar í Hvöt á Blönduósi kærlega fyrir frábæra Smábæjaleika.
Krakkarnir tóku þátt á Smábæjaleikunum sér að kostnaðarlausu þökk sé styrktaraðilum USVS sem eru: Tröll ferðaþjónusta, Smiðjan, Katlatrack, Hótel Laki, Súpufélagið, Arctic Adventures, ÓHG raflagnir, Volcano Hotel, Völustakkur og Húsá ehf. Takk fyrir stuðninginn!


