Blog Post

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Katlatrack

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og Katlatrack

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og Katlatrack.

Með samningnum er Katlatrack einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri.

USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir.

USVS mun auglýsa Katlatrack bæði á keppnisbúningi sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára.

USVS þakkar Katlatrack kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Guðjón Þorstein Guðmundsson eiganda Katlatrack, og Jóhann Braga Elínarson formann USVS, handsala samninginn.

Related Posts