Metþátttaka á innanhúsmóti

Metþátttaka á innanhúsmóti

Hið árlega frjálsíþróttamót USVS innanhús fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn laugardag, 14. febrúar. Gaman er að segja frá því að þátttaka á mótinu var frábær. Um 70 keppendur voru skráðir til leiks, aldrei hafa fleiri verið skráðir á innanhúsmót USVS. Keppendur voru frá Ungmennafélaginu ÁS sem hélt mótið í samstarfi við USVS, Ungmennafélaginu Kötlu, Ungmennafélaginu Heklu sem og frá nágrönnum okkar í austri hjá USÚ. Ástþór Jón Ragnheiðarson var mótsstjóri og þökkum við honum kærlega fyrir sína vinnu. Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum svo allt gengi eins vel og raunin…
Stjörnuleikar á Suðurlandi

Stjörnuleikar á Suðurlandi

Stjörnuleikar á Suðurlandi: Íþróttaskemmtun fyrir börn með sér- og stuðningsþarfir. Íþróttahúsinu Vallaskóla á Selfossi 7. febrúar kl. 13:00-14:30 Hægt verður að prófa ýmsar íþróttagreinar og leiki. Afreksíþróttafólk og Sóli lukkudýr Allir með mæta á svæðið.
Ráðning framkvæmdastjóra

Ráðning framkvæmdastjóra

Í dag undirritaði Jóhann Bragi Elínarson, formaður USVS, fyrir hönd stjórnar samning við Sigurð Eyjólf Sigurjónsson um ráðningu í starf framkvæmdastjóra USVS í 50% starf. Sigurður, eða Siggi eins og hann er alltaf kallaður, hefur verið viðloðandi íþróttastarf innan USVS frá árinu 2017 og komið að fjölbreyttum verkefnum. Má þar m.a. nefna að hann starfaði við knattspyrnuþjálfun hjá Umf. Kötlu og síðar hjá Ungmennafélögunum Ármanni og Skafta sem sameinuðust í Umf. ÁS. Hann hefur verið í fararstjórn USVS á Smábæjaleikunum og á Unglingalandsmótum UMFÍ undanfarin ár. Nú síðast starfaði hann sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Skaftárhreppi. "Það er með…