Vel sótt og vel heppnað fótboltamót
Innanhúsmót USVS í fótbolta fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn sunnudag, 22. mars. Um 40 keppendur frá Ungmennafélögunum ÁS og Kötlu tóku þátt á mótinu sem tókst vel til. Keppnisflokkarnir voru þrír, 1.-3. bekkur, 4.-6. bekkur og 7.-10. bekkur. Í yngsta hópnum spiluðu ÁS og Katla einn leik á móti hvort öðru, í seinni leiknum var spilað í blönduðum liðum og úr varð hið mesta fjör. Í flokki 4.-6. bekkjar og 7.-10. bekkjar var spilað í svokölluðu stigaboltamóti þar sem keppendur safna stigum. Þar sem gefin eru stig fyrir að vera í sigurliði, jafntefli, skora mark, leggja upp…










