Mýrdalshlaupið fór fram í dag, annað árið í röð og voru keppendur 22 talsins. Hlaupið var frá Dyrhólaós eftir Reynisfjöru, upp á og eftir brún Reynisfjalls og loks niður til Víkur. Vegalengdin eru 10km og er hlaupið utan vega. Veðrið lék við keppendur og Mýrdalurinn skartaði sínu fegursta. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla og kvennaflokkum. Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark á tímanum 42,49. Snorri Gunnarsson var annar á 49,35 og Guðni Páll Pálsson þriðji á 49,46. Fyrst kvenna í mark var Jónína Gunnarsdóttir á 57,39, Guðbjörg Margrét Björnssdóttir önnur á 58,36 og Fjóla…