Gleðilega hátíð

Gleðilega hátíð

Sendum okkar bestu jóla-og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Stjórn og starfsfólk USVS
Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Fundurinn er haldinn á Icelandair Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, miðvikudaginn 16. desember, kl 20:00. Þeir sem eru boðaðir á fundinn eru stjórn og varastjórn USVS og formenn allra aðildarfélaga USVS. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Stefnumótunarnefnd. Munnlegar skýrslur frá formönnum félaga. Samæfingar Sýsluþjálfari. Önnur mál.
80 milljónir í boði fyrir íslensk samtök og sveitarfélög

80 milljónir í boði fyrir íslensk samtök og sveitarfélög

Kynning á European Voluntary Service (EVS) í Sigtúni 42 8.12.2015 kl.14-16 Árlega er Evrópa unga fólksins að styrkja 50 ungmenni frá Evrópu og 10 íslensk ungmenni í sjálfboðaverkefni. í tilefni 20 ára afmæli EVS hefur fjármagnið aukist og hægt að styrkja mun fleiri ungmenni til að öðlast reynslu á alþjóðavettvangi. Ísland fær úthlutað 80 milljónir á ári til að styrkja samtök og sveitarfélög til að senda og/eða taka á móti sjálfboðaliðum. Frábært tækifæri fyrir íslensk samtök/sveitarfélög sem vilja efla starf sitt með aðkomu ungra sjálfboðaliða frá Evrópu. Frábært tækifæri fyrir íslensk ungmenni á aldrinum 18-30 að fara til Evrópu…
Laust starf framkvæmdastjóra

Laust starf framkvæmdastjóra

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir laust starf framkvæmdastjóra sambandsins í 50% stöðu. Í starfinu felst umsjón með daglegum rekstri félagsins ásamt verkefnum sem stjórn félagsins setur fyrir. Reynsla af störfum og rekstri innan ungmennahreyfingarinnar eða öðrum félagasamtökum er kostur. Framkvæmdastjóri þarf að hafa búsetu í Vestur-Skaftafellssýslu. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og hafa áhuga á verkefnum ungmennahreyfingarinnar.  Gerð er krafa um hreint sakarvottorð í samræmi við reglur íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar. Æskilegt er að viðkomandi  geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt meðmælum sendist á usvs@usvs.is fyrir 1. September n.k.
Íþróttahátíð USVS

Íþróttahátíð USVS

Íþróttahátíð USVS   Íþróttahátíð USVS verður haldin á Víkurvelli laugardaginn 29. ágúst og hefst keppni kl 10:00. Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum.     7 ára og yngri 60m. Langstökk Boltakast   8-9 ára 60m 400m Langstökk Boltakast         10-11 ára 60m 600m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   12-13 ára 80m 600m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   14-15 ára 100m 800m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   16 ára og eldri 100m 800m 1500m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   Tímaseðill Skráningar sendist á usvs@usvs.is  
Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir náði þeim frábæra árangri að verða heimsmeistari í tölti á hesti sínum, Þokka frá Efstu-Grund, á heimsmeistaramótinu í Herning í Danmörku. Sigurinn er enn stærri fyrir það að töltið er jafnan aðal keppnisgreinin á heimsmeistarmótinu. Þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur innan vébanda USVS verður heimsmeistari. USVS óskar Kristínu Lárusdóttur til hamingju með þennan frábæra árangur. Sigrarnir gerast vart stærri.
Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri

Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri

Nú líður senn að Unglingalandsmótinu á Akureyri um verslunarmannahelgina. USVS vill hvetja öll ungmenni og foreldra þeirra, á sambandssvæðinu, að fjölmenna norður. Við skemmtum okkur öll vel á mótinu í fyrra og fjörið verður ekki síðra í ár. Boðið upp á fjölda greina við allra hæfi. Við ætlum svo sannarlega að fjölmenna einnig í ár. Upplýsingar og skráning á vefsíðu mótsins á www.ulm.is. Skráningarfrestur er til 26. júlí.
Kristín Lárusdóttir valin í landsliðið í hestaíþróttum

Kristín Lárusdóttir valin í landsliðið í hestaíþróttum

Einn af íþróttamönnum okkar í USVS, Kristín Lárusdóttir, var valin nú í vikunni í landsliðið í hestaíþróttum. Kristín hefur náð frábærum árangri síðustu misserin á Þokka frá Efstu-Grund og á hún því landsliðssætið svo sannarlega skilið. USVS óskar Kristínu Lárusdóttur til hamingju með landsliðssætið.
Miðsumarsmót USVS

Miðsumarsmót USVS

Miðsumarsmót USVS   Miðsumarsmót USVS verður haldið á Víkurvelli sunnudaginn 5. júlí og hefst keppni kl 13:00. Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum.     7 ára og yngri 60m. Langstökk Boltakast   8-9 ára 60m 400m Langstökk Boltakast     10-11 ára 60m 600m 60m grind Langstökk Kúluvarp Spjótkast   12-13 ára 80m 1500m 60m grind Langstökk Kúluvarp Spjótkast   14-15 ára 100m 1500m 80m grind Langstökk Kúluvarp Spjótkast   Tímaseðil mótsins má nálgast á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2485.htm Skráningar sendist á usvs@usvs.is
USVS félagar á Meistaramóti Íslands

USVS félagar á Meistaramóti Íslands

Meistaramót Íslands 11-14 ára, fyrri dagur. Úrslit og myndir. Fyrri dagurinn gekk vel hjá USVS, mikið um bætingar, og ágætur árangur. Úrslitin eru eftirfarandi: Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir 100m riðlakeppni. 14,45sek, 10.sæti, pb. 100m úrslit. 15,56sek, 15.sæti. Kúluvarp. 6,28m, 23.sæti, pb. 800m. 3:06,40. 9.sæti, pb. Vignir Jóhannson 60m. 10,71sek, 9.sæti, pb. Kúluvarp. 6,65m, 6.sæti, pb. Orri Bjarnason 100m. 15,63sek, 14.sæti, pb. Spjótkast. 23,82m, 9.sæti, pb. Langstökk. 3,76m, 13.sæti, pb 800m. 2:49,55. 6.sæti, pb. Frábær árangur hjá öllum, ekki sjálfgefið að sjá bætingar hjá öllum, í öllum greinum. Í stigakeppninni stendur USVS að loknum 1.degi í 13.sæti af 16.liðum, með 16…