Innanhúsmót USVS 2016

Innanhúsmót USVS 2016

Innanhúsmót í frjálsum íþróttum verður haldið í íþróttarhúsinu á Kirkjubæjarklaustri 27. febrúar. 2016 mótið hefst kl. 10:00.  Tekið er við skráningum í gegn um tölvupóst, netfangið er usvs@usvs.is skráning sendist með nafni og kennitölu keppenda ásamt hvaða keppnisgreinar viðkomandi vill keppa í. Keppnisgreinar fyrir fólk á öllum aldri, sjáumst hress. Aldursskipting. 7 ára og yngri Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Boltakast 8-9 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Boltakast 10-11 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Hástökk Kúluvarp 12-13 ára 600m hlaup Langstökk án atrenu Þrístökk án atrenu Hástökk Kúluvarp 14 -…
Ráðstefna fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára á vegum UMFÍ

Ráðstefna fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára á vegum UMFÍ

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur nú í sjöunda sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna – geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og mun hún fara fram 16. – 18. mars á Hótel Selfossi. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni en jafnframt koma Héraðssambandið Skarphéðinn og Sveitarfélagið Árborg að undirbúningi. Ungmennaráð UMFÍ hefur fengið til liðs við sig fagfólk frá Kvíðameðferðarstöðinni. Áhersla verður lögð á óformlegt nám og virka þátttöku í vinnustofum ráðstefnunnar. Dagskrá verður með fjölbreyttu sniði, sjá dagskrá hér. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki…
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir umsóknum í Æskulýðssjóð USVS.

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir umsóknum í Æskulýðssjóð USVS.

Styrkhæf teljast verkefni sem uppfylla kröfur 5.gr reglugerðar USVS um Æskulýðssjóð grein Framlög úr æskulýðssjóði má veita til eftirtalinna verkefna, svo fremi að þau verkefni nýtist að öllu, eða mestöllu leyti, æsku aðildarfélaga USVS. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna Íþróttastarfs, svo sem keppnisferða og námskeiða á því sviði. Forvarnarstarfs gegn neyslu vímuefna. Tómstunda- og menningarstarfs Annarra verkefna sem snúa að æskulýðsmálum og teljast í samræmi við yfirlýst stefnumið UMFÍ og USVS. Reglugerð um Æskulýðssjóð Umsóknir berist til Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu með tölvupósti á usvs@usvs.is fyrir 1. Mars n.k Nánari upplýsingar veitir Gísli Steinar framkvæmdastjóri á netfanginu usvs@usvs.is.
Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Ungmennafélagið Katla Starfsárið 2015

Árleg þrettándagleði var haldin venju samkvæmt þann 6.janúar í Leikskálum, veitt verðlaun fyrir íþróttamann ársins , efnilegasta íþróttamann ársins og björtustu vonina að því loknu var spilað bingó. Ekkert varð af flugeldasýningu þetta árið vegna veðurs (aldrei þessu vant). Vetrarstarf hélst í sömu skorðum eftir áramót nema við dagskránna bættust frjálsíþróttaæfingar. Auk þeirra var boðið upp á æfingar í fimleikum, knattspyrnu og badminton. Boðið var upp á æfingar fyrir fullorðnar sem voru vel sóttar. Í lok janúar var haldinn súpufundur á vegum stjórnar Kötlu þar sem gerð var tilraun til að ná foreldrum nær starfi ungmennafélagsins og skapa umræðu…
Gleðilega hátíð

Gleðilega hátíð

Sendum okkar bestu jóla-og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Stjórn og starfsfólk USVS
Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Sambandsráðsfundur USVS miðvikudaginn 16. desember

Fundurinn er haldinn á Icelandair Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, miðvikudaginn 16. desember, kl 20:00. Þeir sem eru boðaðir á fundinn eru stjórn og varastjórn USVS og formenn allra aðildarfélaga USVS. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Stefnumótunarnefnd. Munnlegar skýrslur frá formönnum félaga. Samæfingar Sýsluþjálfari. Önnur mál.
80 milljónir í boði fyrir íslensk samtök og sveitarfélög

80 milljónir í boði fyrir íslensk samtök og sveitarfélög

Kynning á European Voluntary Service (EVS) í Sigtúni 42 8.12.2015 kl.14-16 Árlega er Evrópa unga fólksins að styrkja 50 ungmenni frá Evrópu og 10 íslensk ungmenni í sjálfboðaverkefni. í tilefni 20 ára afmæli EVS hefur fjármagnið aukist og hægt að styrkja mun fleiri ungmenni til að öðlast reynslu á alþjóðavettvangi. Ísland fær úthlutað 80 milljónir á ári til að styrkja samtök og sveitarfélög til að senda og/eða taka á móti sjálfboðaliðum. Frábært tækifæri fyrir íslensk samtök/sveitarfélög sem vilja efla starf sitt með aðkomu ungra sjálfboðaliða frá Evrópu. Frábært tækifæri fyrir íslensk ungmenni á aldrinum 18-30 að fara til Evrópu…
Laust starf framkvæmdastjóra

Laust starf framkvæmdastjóra

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir laust starf framkvæmdastjóra sambandsins í 50% stöðu. Í starfinu felst umsjón með daglegum rekstri félagsins ásamt verkefnum sem stjórn félagsins setur fyrir. Reynsla af störfum og rekstri innan ungmennahreyfingarinnar eða öðrum félagasamtökum er kostur. Framkvæmdastjóri þarf að hafa búsetu í Vestur-Skaftafellssýslu. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og hafa áhuga á verkefnum ungmennahreyfingarinnar.  Gerð er krafa um hreint sakarvottorð í samræmi við reglur íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar. Æskilegt er að viðkomandi  geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt meðmælum sendist á usvs@usvs.is fyrir 1. September n.k.
Íþróttahátíð USVS

Íþróttahátíð USVS

Íþróttahátíð USVS   Íþróttahátíð USVS verður haldin á Víkurvelli laugardaginn 29. ágúst og hefst keppni kl 10:00. Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum.     7 ára og yngri 60m. Langstökk Boltakast   8-9 ára 60m 400m Langstökk Boltakast         10-11 ára 60m 600m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   12-13 ára 80m 600m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   14-15 ára 100m 800m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   16 ára og eldri 100m 800m 1500m Langstökk Kúluvarp Spjótkast   Tímaseðill Skráningar sendist á usvs@usvs.is  
Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir heimsmeistari!!!

Kristín Lárusdóttir náði þeim frábæra árangri að verða heimsmeistari í tölti á hesti sínum, Þokka frá Efstu-Grund, á heimsmeistaramótinu í Herning í Danmörku. Sigurinn er enn stærri fyrir það að töltið er jafnan aðal keppnisgreinin á heimsmeistarmótinu. Þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur innan vébanda USVS verður heimsmeistari. USVS óskar Kristínu Lárusdóttur til hamingju með þennan frábæra árangur. Sigrarnir gerast vart stærri.