56. sambandsþing USVS fór fram í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri á föstudaginn. Þingið var vel sótt og afar viðburðaríkt.
USVS veitti þar viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:
-Íþróttamaður ársins
-Efnilegasti íþróttamaðurinn
-Lið ársins
-Sjálfboðaliði ársins
Íþróttamaður ársins 2025:
Í flokknum íþróttamaður ársins bárust fjórar tilnefningar
-Ásgeir Örn Sverrisson, Ungmennafélaginu ÁS
-Egill Atlason Waagfjörð, Ungmennafélaginu Kötlu
-Svanhildur Guðbrandsdóttir, Hestamannafélaginu Kópi
-Þorsteinn Björn Einarsson, Hestamannafélaginu Sindra
Íþróttamaður USVS árið 2025 var útnefndur Egill Atlason Waagfjörð.
Um leið og USVS óskar Agli til hamingju óskar sambandið öllum sem hlutu tilnefningu til hamingju með frábært íþróttaár með ósk og áframhaldandi velgengni á árinu 2026. Umsagnir um alla þá sem hlutu tilnefningu má finna neðst í þessari frétt.
Á myndinni sem fylgir hér að ofan má sjá frá vinstri: Láru Oddsteinsdóttur sem tók við tilnefningu fyrir Þorstein Björn, Guðbrand Magnússon sem tók við tilnefningu fyrir Svanhildi dóttur sína, Katrínu Waagfjörð sem veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir Egil son sinn, Jóhann Braga formann USVS, Ásgeir Örn sem tilnefndur var sem íþróttamaður ársins og Sigurð Eyjólf framkvæmdastjóra USVS.

Efnilegasti íþróttamaður USVS 2025:
Í flokknum efnilegasti íþróttamaður USVS bárust þrjár tilnefningar.
-Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð, Ungmennafélaginu Kötlu
-Kristófer Gunnar Bjarkason, Ungmennafélaginu ÁS
-Rúnar Smári Ragnarsson Blandon, Ungmennafélaginu ÁS
Efnilegasti íþróttamaður USVS 2025 var útnefnd: Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð
Um leið og USVS óskar Freyju til hamingju óskar sambandið öllum sem hlutu tilnefningu til hamingju með frábært íþróttaár með ósk og áframhaldandi velgengni á árinu 2026. Umsagnir um alla þá sem hlutu tilnefningu má finna neðst í þessari frétt.
Á myndinni sem fylgir hér að ofan eru frá vinstri: Rúnar Smári Ragnarsson Blandon, Kristófer Gunnar Bjarkason, Jóhann Bragi formaður USVS, Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð og Sigurður Eyjólfur framkvæmdastjóri USVS.

Lið ársins 2025:
Í flokknum lið ársins bárust tvær tilnefningar:
-5. flokkur Umf. ÁS og Umf. Kötlu í fótbolta, liðið skipuðu þau Gunnar Ingi Sigurðsson, Jóhannes Birgir Örvarsson, Kristmundur Rafn Guðmundsson, Patrekur Leó Saithong Óðinsson, Rúnar Smári Ragnarsson Blandon, Signý Heiða Þormarsdóttir, Sigurbjörn Ási Pétursson og Sæmundur Óli Davíðsson.
-Stúlknalið Umf. Kötlu, liðið skipuðu þær Gréta Björk Einarsdóttir, Sigríður Gabríella Björg Valdimarsdóttir og Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð
Lið ársins 2025 var útnefnt: 5. flokkur Umf. ÁS og Umf. Kötlu í fótbolta
Um leið og USVS óskar 5. flokki Umf. ÁS og Umf. Kötlu í fótbolta til hamingju óskar sambandið stúlknaliði Umf. Kötlu til hamingju með tilnefninguna og flottan árangur. Umsagnir um alla þá sem hlutu tilnefningu má finna neðst í þessari frétt.
Á myndinni sem fylgir hér að ofan eru frá vinstri: Gréta Björk Einarsdóttir, Sigríður Gabríella Björg Valdimarsdóttir, Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð, Sigurbjörn Ási Pétursson, Signý Heiða Þormarsdóttir, Kristmundur Rafn Guðmundsson, Jóhann Bragi formaður USVS, Jóhannes Birgir Örvarsson, Gunnar Ingi Sigurðsson, Rúnar Smári Ragnarsson Blandon. Á myndina vantar þá Patrek Leó og Sæmund Óla.

Sjálfboðaliðar ársins 2025 voru útnefndir:
Sigmar Helgason, Ungmennafélaginu ÁS
Þórdís Erla Ólafsdóttir, Ungmennafélaginu Kötlu
USVS þakkar þessum öflugu sjálfboðaliðum innilega fyrir ómetanlegt framlag til íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestur-Skaftafellssýslu. Umsagnir um þau má lesa hér að neðan.
Á myndinni sem fylgir hér að ofan eru frá vinstri: Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð, Sigmar Helgason, Jóhann Bragi formaður USVS og Sigurður Eyjólfur framkvæmdastjóri USVS.
