Landsmót UMFÍ 50+ fór fram í Eyjafirði dagana 26.-28. júní sl. Stærstur hluti mótsins fór fram í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit en einnig var keppt á Akureyri og á Dalvík. Mótið var hið glæsilegasta og vel að öllu staðið.
Keppnisgreinarnar í ár voru alls 19 talsins, badminton, boccia, bogfimi, brennibolti, bridds, fjölskylduhlaup, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, hjólreiðar, pílukast, pokavarp, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, skotfimi, stígvélakast og sund.
Keppendur USVS á mótinu voru þau Hafdís Eggertsdóttir, Ragnheiður Högnadóttir, Sabina Victoria Reinholdsdóttir og Sveinn Þorsteinsson.
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram á Hellu dagana 25.-27. júní á næsta ári.
Hér að neðan má sjá samantekt yfir þær greinar sem keppendur USVS tóku þátt í sem og árangur:
Hafdís Eggertsdóttir: 100m hlaup kvenna 70-74 ára (3. sæti), kúluvarp kvenna 70-74 ára (3. sæti), spjótkast kvenna 70-74 ára (2. sæti).
Ragnheiður Högnadóttir: Kúluvarp kvenna 60-64 ára (4. sæti) og spjótkast kvenna 60-64 ára (5. sæti).
Sabina Victoria Reinholdsdóttir: Hjólreiðar, 100m hlaup kvenna 50-54 ára (2. sæti), 400m hlaup kvenna 50-54 ára (1. sæti), kúluvarp kvenna 50-54 ára (1. sæti).
Sveinn Þorsteinsson: Bogfimi (2. sæti í B.bow 15m flokki karla) og keppti í ringó með liði HSK sem vann þrjá leiki og lenti í 5. sæti í sínum riðli.
Myndirnar sem hér fylgja eru frá UMFÍ.


