Samstarfssamningur undirritaður – USVS og ÓHG raflagnir

Samstarfssamningur undirritaður – USVS og ÓHG raflagnir

Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu og ÓHG Raflagnir. Með samningnum er ÓHG Raflagnir einn af styrktaraðilum USVS. Megin markmið samningsins er að styðja við mótastarf barna og unglinga í Vestur-Skaftafellssýslu þar sem Smábæjaleikarnir og Unglingalandsmót eru hápunktarnir á hverju sumri. USVS setur sér það markmið að öll börn og unglingar geti tekið þátt á mótunum sér að kostnaðarlausu. Allir keppendur munu jafnframt fá gefins peysu og keppnisbúningar verða niðurgreiddir. USVS mun auglýsa ÓHG Raflagnir bæði á keppnistreyju sem og á peysu. Samningurinn gildir til tveggja ára. USVS þakkar ÓHG Raflögnum kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til…
Vill fyrirtækið þitt styðja við USVS?

Vill fyrirtækið þitt styðja við USVS?

Undirbúningur fyrir mótastarf sumarsins er nú í fullum gangi hjá USVS. Hápunktar í starfi hvers sumars er þátttaka á Smábæjaleikunum á Blönduósi sem og á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki að þessu sinni. Til að jafna möguleika iðkenda USVS á þátttöku sem mest leggjum við upp með að iðkendur USVS geti tekið þátt á mótum sumarsins sér að kostnaðarlausu, einnig munu keppendur fá peysu að gjöf og keppnisbúningur verður niðurgreiddur að hluta. USVS leitar nú til fyrirtækja sem hafa áhuga á að styðja við þetta starf. USVS býður áhugasömum að kaupa auglýsingu á keppnisbúninginn og með því…
Komdu í fótbolta með Mola í Vík og á Kirkjubæjarklaustri

Komdu í fótbolta með Mola í Vík og á Kirkjubæjarklaustri

Komdu í fótbolta með Mola verður á sínum stað í sumar líkt og fyrri ár. Sjöunda árið í röð heimsækir Moli okkur en um er að ræða grasrótarverkefni á vegum Knattspyrnusambands Íslands. Hann verður á ferðinni í Vestur-Skaftafellssýslu þriðjudaginn 2. júní nk. og eru tímasetninganar sem hér segir: Þriðjudagur 2. júní:16:00 Vík í Mýrdal18:15 Kirkjubæjarklaustur Áhugasamir á öllum aldri velkomnir!
Skráning hafin á Smábæjaleikana á Blönduósi

Skráning hafin á Smábæjaleikana á Blönduósi

USVS lætur sig ekki vanta á Smábæjaleikana á Blönduósi sem fara fram dagana 13.-14. júní 2026. Skráning er hafin - allir iðkendur innan USVS fædd/ir á árunum 2014-2019 geta skráð sig! Ómissandi hluti af knattspyrnusumrinu í Vestur-Skaftafellssýslu. Skráning iðkenda USVS er opin til sunnudagsins 3. maí kl. 23:59. Hvetjum ykkur til að ganga frá skráningu sem fyrst! Skráning fer fram í gegnum Sportabler: https://www.abler.io/shop?country=IS&mode=programs&search=usvs
Góð þátttaka og mikið fjör á vormóti USVS

Góð þátttaka og mikið fjör á vormóti USVS

Vormót USVS í körfubolta fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri í gær. Mótið var vel sótt og voru keppendur um 70 talsins frá fjórum félögum, ÁS og Kötlu í Vestur-Skaftafellssýslu og úr Rangárvallasýslu Dímon og Garpur. Alls voru spilaðir 27 leikir á mótinu. USVS færir öllum sem að mótinu komu kærar þakkir og sérstakar þakkir til allra þeirra sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum, eins og við vitum öll væri þetta ekki hægt án þeirra! Þetta var síðasta USVS mót vetrarsins 2025-2026 en við vekjum athygli á uppfærðu viðburðadagatali hér á heimasíðunni. Aðildarfélög eru hvött til að hafa samband…
Samantekt frá sambandsþingi

Samantekt frá sambandsþingi

Eins og greint hefur verið frá hér á heimasíðu USVS síðustu daga var sambandsþingið síðastliðinn föstudag afar viðburðaríkt. Nú þegar hefur verið greint frá þeim viðurkenningum sem veitt voru á þinginu sem og frá þeim tímamótasamningi sem undirritaður var undir lok þingsins. Góðir gestir sóttu þingiðEins og alltaf sóttu fulltrúar frá UMFÍ og ÍSÍ þingið. Ragnheiður Högnadóttir sótti þingið fyrir hönd Ungmennafélags Íslands og fulltrúi Íþróttasambands Íslands var Hafsteinn Pálsson. Fulltrúar sveitarfélaganna sóttu þingið, frá Mýrdalshreppi þeir Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Björn Þór Ólafsson oddviti. Frá Skaftárhreppi Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri og Jóhannes Gissurarson oddiviti. Rakel Magnúsdóttir svæðisfulltrúi…
Þessi sköruðu framúr á árinu 2025 hjá USVS

Þessi sköruðu framúr á árinu 2025 hjá USVS

56. sambandsþing USVS fór fram í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri á föstudaginn. Þingið var vel sótt og afar viðburðaríkt. USVS veitti þar viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:-Íþróttamaður ársins-Efnilegasti íþróttamaðurinn-Lið ársins-Sjálfboðaliði ársinsÍþróttamaður ársins 2025:Í flokknum íþróttamaður ársins bárust fjórar tilnefningar-Ásgeir Örn Sverrisson, Ungmennafélaginu ÁS-Egill Atlason Waagfjörð, Ungmennafélaginu Kötlu-Svanhildur Guðbrandsdóttir, Hestamannafélaginu Kópi-Þorsteinn Björn Einarsson, Hestamannafélaginu SindraÍþróttamaður USVS árið 2025 var útnefndur Egill Atlason Waagfjörð. Um leið og USVS óskar Agli til hamingju óskar sambandið öllum sem hlutu tilnefningu til hamingju með frábært íþróttaár með ósk og áframhaldandi velgengni á árinu 2026. Umsagnir um alla þá sem hlutu tilnefningu má finna neðst í…
Tímamótasamningur undirritaður

Tímamótasamningur undirritaður

56. sambandsþing USVS fór fram í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í gær. Þingið var vel sótt og afar viðburðaríkt. Undir lok þingsins undirrituðu Jóhann Bragi Elínarson formaður USVS, Björn Þór Ólafsson oddviti Mýrdalshrepps og Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri Skaftárhrepps undir tímamóta samstarfssamning. Samning sem mun styðja og efla USVS, aðildarfélögin og samfélagið í Vestur-Skaftafellssýslu í heild sinni. Í samningum segir m.a.: Samningi þessum er ætlað að efla starf USVS og aðildarfélaga þess með megináherslu á barna og unglingastarf auk þess að stuðla að auknu samstarfi USVS og sveitarfélaganna á sviði íþróttamála. Áhersla er lögð á mikilvægi þess öfluga starfs…