Unglingalandsmót á Egilsstöðum

Unglingalandsmót á Egilsstöðum

Unglingalandsmót verður haldið  um verslunarmannahelgina á Egilstöðum. USVS hvetur alla á aldrinum 11-18 ára til þátttöku í einhverjum af þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Skráningar eru hafnar inn á umfi.felog.is Þá er einnig í boði fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Gott væri að heyra frá þeim sem að ætla að fara. Vinsamlegast látið vita í gegnum tölvupóstfangið usvs@usvs.is eða í síma Erlu Þóreyjar s:8631809. USVS ætlar að greiða keppnisgjald að fullu fyrir keppendur sína að þessu sinni. Sjáumst öll á Egilstöðum um verslunnarmannahelgina!
Read More
Landsmót 50+ Hveragerði

Landsmót 50+ Hveragerði

Nú styttist heldur betur í Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði, sem verður dagana 23.-25. júní. Ertu tilbúin/n? USVS hvetur til þátttöku og vonast til að fólk fjölmenni á þennan skemmtilega viðburð. Opnað var fyrir skráningu 1. júní. Það er hægt að skrá sig á umfi.is. Á mótinu í Hveragerði verður hægt að keppa í fjölda greina allt frá kúluvarpi til pútts, fuglagreiningar, strandblaki til pönnukökubaksturs og stígvélakasts. Þá er bridds eftir, golf, boccía og utanvegahlaupið. Þetta er bara brot af greinunum
Read More
Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum í Hreyfiviku.

Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum í Hreyfiviku.

Hreyfivika  heppnaðis mjög vel þetta árið. Ungmennafélagið Katla stóð að mörgum viðburðum. Á mánudaginn var samstarfsverkefni Lögreglunnar, Ungmennafélagsins Kötlu og Grunnskólans. Lögreglan fór með nemendur í elstu bekkjum grunnskólans í hjólaferð þar sem einnig var farið yfir helstu umferðareglur. Það var líka fjör í leikskólanum á mánudaginn. Þar var um að ræða samstarf Lögreglu, Ungmennafélags Kötlu  og leikskólans og var farið með eldri deild leikskólans í gönguferð og farið yfir helstu umferðarreglur.  Stærsti viðburður Ungmennafélagsins Kötlu var síðan Mýrdalshlaupið sem var haldið laugardaginn 3. júní. Það tóku þátt 21 hlauparar í hlaupinu. Tveir landsliðsmenn tóku þátt í hlaupinu þeir Guðni Páll…
Read More
Efnilegasti íþróttamaður USVS 2016

Efnilegasti íþróttamaður USVS 2016

Ólöf Sigurlína Einarsdóttir  var valin efnilegasti íþróttamaður ársins 2016 hjá USVS. Hún hefur tekið stórstígum framförum síðasta árið. Ólöf keppti með liði Hófadyns í Meistaradeild æskunnar ásamt 4 öðrum krökkum af Suðurlandi og stóð sig með miklum sóma. Meðfylgjandi er mynd af liðinu og þar er Ólöf önnur frá hægri.
Read More
Lið ICEWEAR í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum 2017

Lið ICEWEAR í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum 2017

  5  Skaftfellskir knapar tóku þátt í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í vetur undir merkjum ICEWEAR sem styrkti þátttöku liðsins í deildinni. Suðurlandsdeildin er ný deild í hestaíþróttum sem hófst í vetur og samanstóð af 4 keppniskvöldum á tveggja vikna fresti í janúar til mars þar sem tólf 5 manna lið blönduð áhugamönnum og atvinnumönnum tóku þátt. Keppt var í fjórgangi, parafimi, tölti og fimmgangi og voru tvenn úrslit í hverri grein annarsvegar fyrir áhugamenn og hinsvegar fyrir atvinnumenn. Liði ICEWEAR gekk með ágætum og skiluðu knapar sér í úrslit í 5 skipti af þessum 8 úrslitum. Deildin var einstaklega vel…
Read More
Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík.

Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík.

Aðalfundur Umf.Kötlu 2016 verður haldin þann 10.apríl kl:11:00 í Eddusal Icelandair Hotel Vík. Á dagskrá eru hefðbundin fundarstörf og ber þar helst að nefna skýrslu stjórnar, ýmsar tillögur, stjórnar og nefndarkjör og önnur mál. Einnig mun fara fram kynning á sumarstarfi Umf.Kötlu, þar sem þjálfarar ásamt stjórn fara yfir dagskrá komandi mánaða og afhending og pöntun á æfingarfatnaði félagsins. Fjölmennum á fund !
Read More
Efnilegasti íþróttamaður ársins 2015 Þuríður Inga Gísladóttir

Efnilegasti íþróttamaður ársins 2015 Þuríður Inga Gísladóttir

Efnilegasti knapi hmf. Sindra árið 2015 hefur stundað hestamennsku frá barnæsku og tekið þátt á mótum hmf. Sindra iðullega með góðum árangri. Knapinn er verulega áhugasamur hestamaður og nýtir flestar sínar lausu stundir í hesthúsinu, hann hefur stundað nám á hestabraut í fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðin tvö ár og vann m.a. við tamningar og þjálfun síðastliðið sumar. Knapinn hefur tekið þátt á nokkrum mótum utan félagsins s.s. Fsu móti, íþróttamóti Sleipnis, gæðingamóti Geysis, stórmóti Geysis og Suðurlandsmóti yngri flokka, á öllum þessum mótum vann knapinn sér inn sæti í úrslitum. Knapinn tók einnig þátt á Íslandsmóti barna og unglinga með góðum…
Read More
Íþróttamaður ársins 2015 Krístín Lárusdóttir

Íþróttamaður ársins 2015 Krístín Lárusdóttir

Kristín er Hestamannafélaginu Kópi til sóma. Fagmannleg innan vallar sem utan. Á árinu hefur Kristín verið að keppa á mótum út um allt land, og staðið sig þar með mikilli prýði. Má þar nefna sem dæmi Svellkaldar og náði hún þar góðum árangri og endaði í fyrsta sæti á hestinum Þokka frá Efstu-Grund. Það sem að ber af á árinu hjá Kristínu er HM í Herning í Danmörku. En þar kom hún sá og sigraði, heimsmeistaratitillinn í tölti varð staðreyndin. Flottur árangur hjá Kristínu og teljum við að hún sé vel að þessum titli komin.
Read More